Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir ágúst, 2008

Spítalalíf

30. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að innvígðir og innmúraðir í heilbrigðisgeiranum töldu sig vita með allnokkrum fyrirvara hver yrði nýr forstjóri Landspítalans. Þetta hafði legið í loftinu um talsverðan tíma, þó að ráðherrann hafi - útávið - verið þögull sem gröfin. Nokkur spenna hljóp í málið þegar kom í ljós að fráfarandi stjórnendur höfðu skilað betri rekstrarafkomu spítalans á fyrra helmingi ársins, heldur en sést hefur í manna minnum. Annar þeirra, Björn Zoega, sóttist nefnilega líka eftir starfinu.

Hinum innvígðu þykir mörgum skrítið að fara yfir pollinn til Noregs eftir nýjum forstjóra þegar vel hæfur maður var þegar sestur við stjórnvölinn. Hvers vegna var ráðherra Sjálfstæðisflokksins væri að sækja krata til Noregs í djobbið - og um leið að útvega maka hennar - hátt settum í norska jafnaðarmannaflokknum - vinnu á Íslandi í leiðinni?

Orðið á götunni er pólitík. Þannig gæti val heilbrigðisráðherra tengst því að formaður íslenskra krata, Ingibjörg Sólrún, lánaði einn helsta ráðgjafa sinn í utanríkisráðuneytinu, Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, til heilbrigðisráðuneytisins til að koma skikki á rekstur spítalans. Kannski þetta tengist því líka, að til að koma á umbótum í rekstri spítalans vildi heilbrigðisráðherrann losna við fyrrverandi forstjóra, Magnús Pétursson, og til þess þurfti hann stuðning formanns samstarfsflokksins - og fékk hann.

Nú bíður nýs forstjóra að glíma við erfið verkefni. Hulda Gunnlaugsdóttir er hjúkrunarfræðingur að mennt með ýmislegt viðbótarnám í stjórnunar- og spítalafræðum. Hún hefur rekið sjúkrahús í Noregi, en spítalamenn á Íslandi efast um að sú reynsla ein og sér dugi, Landspítalinn sé að eðli og allri gerð afar frábrugðinn hinum norsku spítulum sem hún hefur unnið við. Í fyrsta lagi er Landsinn á fjárlögum og þar af leiðandi í eilífum fjárhagskröggum sem stafa af því að fjárveitingar eru ekki endilega í neinu samræmi við verkefnin. Í Noregi sé kostnaðurinn aftur á móti greiddur eftir verkefnum. Þá sé sérhæfing mikil á norsku spítulunum og reksturinn þar af leiðandi í mun fastari skorðum en hér, þar sem öllu ægir saman á einni stofnun.

Loks ber að nefna stærstu þolraunina sem Hulda stendur frammi fyrir: Að ráða við alla smákóngana sem áratuga hefð er fyrir á Landsanum. Hver heilbrigðisráðherrann eftir annan hefur farið halloka í þeim viðureignum og hver forstjórinn eftir annan látið undan í því stríði. Töffaranum, sem gegndi bráðabirgðaforstjórastöðunni, var vikið aftur í sitt gamla starf, væntanlega í þeirri von að hann verði um kyrrt og taki ekki boðum sem hann hefur fengið frá ýmsum erlendum spítulum um frama þar.

Orðið á götunni er að Hulda megi hrósa happi að hafa Björn sér við hlið. Hann geti aðstoðað hana í slagnum við smákóngaveldið sem keyrt hafi upp rekstrarkostnað spítalans, reyndar tekið rekstrarkostnaðinn nánast úr sambandi við nokkuð sem kalla megi stjórnun. Þá kemur það í ljós - er hún nagli eða ...




Íslenska innrásin til Denver

29. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að ótrúlega margir Íslendingar hafi verið í Denver í Colorado í Bandaríkjunum undanfarna daga að fylgjast með flokksþingi bandarískra demókrata, sem náði hámarki þegar Barack Obama tók við útnefningu sem forsetaframbjóðandi í gærkvöldi.

Þeirra á meðal eru eyjubloggarinn Silja Bára Ómarsdóttir, fréttamaðurinn Ingólfur Bjarni Sigfússon og líka svilarnir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, og Kristján Guy Burgess, óformlegur aðstoðarmaður Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.

Einkum hefur Kristján komið sér upp sterku tengslaneti í bandarísku stjórnmálalíf í gegnum störf sín fyrir forseta Íslands á undanförnum árum. Kristján var meðal annars ritstjóri ræðunnar sem Ólafur Ragnar flutti í orkumálanefnd bandarísku öldungardeildarinnar í september á síðasta ári. Eins var hann í  í föruneyti Ólafs Ragnars þegar hann átti fund með ýmsum stjórnmálamönnum, þar á meðal Sarah Palin, ríkisstjóra Alaska og nýju varaforsetaefni repúblíkanans John McCain, í Alaska í október á síðasta ári.

Þeir Dagur og Kristján eru þrautreyndir kosningajaxlar úr innsta hring Samfylkingarinnar og leggja án efa vel við hlustir og rækta tengslin við helstu sérfræðinga demókrataflokksins og reyna að læra nýjustu trixin úr baráttu Barack Obama. Sjálfsagt munu þau tengsl  koma að góðum notum í næstu kosningabaráttum hér á landi en ekki er að efa að þar munu þeir báðir leggja sitt af mörkum í þágu Samfylkingarinnar.

Svilarnir eru ekki óvanir því að ferðast saman til útlanda því að þeir vinna saman forvarnarverkefninu Youth in Europe  þar sem Dagur er fulltrúi Reykjavíkurbogar og stjórnarformaður  en fyrirtæki Kristjáns hefur það hlutverk að gæta hagsmuna bæði forseta Íslands, sem er verndari verkefnisins og Actavis sem er helsti kostunaraðili þess.




Einn iPod á mann

28. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að enn fái íslenskur aðall vatn í munninn við tilhugsunina um veisluna sem haldin var  í Kaupmannahöfn sumarið 2007. Þar var verið að opna skrifstofu FL Group í Danmörku og var mikið um dýrðir. Flogið var með nokkur dúsín af boðsgestum til Danmerkur. Hópurinn var fjölskrúðugur - þarna blönduðu geði bisnessmenn og stjórnmálamenn, allt frá Gísla Marteini Baldurssyni, háskólanema, upp í Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands.

Það var gist á á Hotel D’Angleterre og við komu þangað var tekið á móti hópnum með kampavíni. Þegar fólk kom upp á hótelherbergin beið hvers og eins gjöf frá FL Group  - eitt stykki iPod á mann.  Og partíið var rétt að byrja . . .




Við hæfi?

27. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að spurningar hafi vaknað víða í stjórnsýslunni vegna frétta af því að ríkisstjórnin hafi samþykkt tillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um að veita handboltalandsiðinu 50 milljóna króna styrk í tilefni af glæsilegum árangri þess á Ólympíuleikunum.

Menn spyrja sig um hvort það stangist á við hæfisreglur stjórnsýslulaganna að menntamálaráðherra beri þetta mál fram.

Minnugir þess að eiginmaður menntamálaráðherrans er Kristján Arason, sem er ekki bara þjóðþekktur handboltakappi - heldur formaður landsliðsnefndar Handknattleikssambands Íslands og svo nátengdur landsliðinu sem er að þiggja féð frá menntamálaráðherra að staðan hlýtur að vera óþægileg fyrir ráðherrann ef ekki beinlínis á skjön við hæfisreglurnar. Þær eiga einmitt eiga að koma í veg fyrir að stjórnvöld séu að fást við erindi sem varða þeirra nánustu.




Heimtuðu hótel á höfuðborgarsvæðinu

26. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að það hafi borið til tíðinda í sumar að samgöngunefnd Alþingis fór í fyrsta skipti í sérstaka skoðunarferð til þess að kynna sér ástand samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu.

Það hefur löngum tíðkast að nefndin fari út um land og skoði einbreiðar brýr og vænlega staði fyrir jarðgöng en að þessu sinni fékk Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður nefndarinnar, því framgengt að farið var í ferð um sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Orðið á götunni er að það hafi ekki verið einfalt mál, því talsverð andstaða var við kaupstaðarferðina meðal nefndarmanna. Það var ekki fyrr en fallist var á kröfur um að ferðinni lyki með hótelgistingu sem nefndarmenn samþykktu að skoða samgöngumannvirki höfuðborgarbúa. Í lok dagsins gistu þingmenn á lúxushótelinu Kríunesi við Elliðavatn og þar héldu skattgreiðendur þingmönnum og gestum þeirra kvöldverðarboð í tilefni ferðarinnar, rétt eins og venjan er þegar nefndarmenn fara í skoðunarferðir út á land.

Ekki þykir samt líklegt að ferðalagið og kvöldverðarboðið flytji samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu framar í forgangsröðina því þótt nefndarformaðurinn sé Reykjavíkurþingmaður hafa landsbyggðarþingmennirnir tögl og hagldir í nefndinni, þeirra á meðal Karl V. Matthíasson, Samfylkingu, Árni Johnsen, Sjálfstæðisflokki, Guðni Ágústsson, Framsóknarflokki, og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.

Orðið á götunni er að það veki athygli nefndarmanna að mikil vinátta er milli þeirra Árna Johnsen og Guðna Ágústssonar. Sitja þeir löngum tveir á tali enda gamlir vopnabræður úr stjórnarsamstarfi. Er fullyrt að pólitísk viðhorf þeirra tveggja séu líka að mestu leyti hin sömu þótt þeir sitji á þingi fyrir sitthvorn flokkinn.




Uppnám og reiði í barnanefnd

26. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að einstrengingsleg afstaða Ágústs Ólafs Ágústssonar, varaformanns Samfylkingarinnar í forsjármálum setji nú starf nefndar sem félagsmálaráðherra skipaði til að fara yfir stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra á Íslandi í uppnám.

Svipaðar nefndir hafa verið settar á laggirnar annarstaðar á Norðurlöndum og undantekningalaust verið undanfari róttækra breytinga á barnalögjöfinni í öllum löndunum. Á Íslandi var nefndarskipunin þó frábrugðin hinum löndunumþannig að hér er formaðurinn ekki sérfræðingur í málaflokknum, heldur pólitíkus: Ágúst Ólafur Ágústsson. Við skipun nefndarinnar gerðu margir athugasemd við þessa tilhögun.

Eitt af stóru málunum sem nefndinni bar að skoða er svokölluð dómaraheimild, sem  hefur verið innleidd í hjá öllum nágrannaþjóðum okkar. Með dómaraheimild verður dómstólum gert kleyft að dæma börn í sameiginlega forsjá við skilnað.

Flestir hafa verið sammála um að slíka heimild beri að taka upp í íslenskum lögum, en nokkrir þó lagst gegn því, þar á meðal Ágúst Ólafur, að sögn vegna þess að Ágúst sé að reyna að höfða til hópa kvennréttindakvenna, sem hingað til hafa barist gegn breytingum í átt til meira jafnréttis karla og kvenna í málefnum barna.

Orðið á götunni er að í umræddri nefnd hafi dómaraheimildin verið rædd en Ágúst viljað fara hægt í málinu því það væri svo umdeilt. Nefndarmenn stungu þá uppá að nefndin blési til málþings í haust, þar sem aðalumræðuefnið yrði Dómaraheimild og að aðalfyrirlesarinn yrði norskur ópólitískur lagaprófessor, sem leiddi sambærilega nefnd fyrir norska jafnréttisráðherrann, og gjörþekkir lagaumhverfið á Norðurlöndum í þessum málum. Stefnt var að því að málþingið yrði heill dagur og haldið 3. nóvember nk.

Þann 19. ágúst sl, barst svo bréf frá formanni nefndarinnar þar sem hann tilkynnir nefndarmönnum að það hafi verið gerðar breytingar á dagskrá málþingsins. Það verði aðeins hálfur dagur og aðalfyrirlesari verði Jónas Jóhannson og í panel verði Guðrún Erlendsdóttir. Bæði eru sögð vera andstæðingar dómaraheimildar og hafa barist gegn því á sínum tíma að sameiginleg forsjá yrði innleidd sem meginregla í íslensk lög. Jónas hafi kallað þá breytingu réttarfarsslys. Þau tilheyri semsé mjög þröngum hópi fólks sem talar gegn breytingum á íslensku löggjöfinni, þvert á þá þróun sem hefur átt sér stað í allri vestur evrópu á undanförnum áratugum.

Orðið á götunni er að starf nefndarinnar sé komið í algjört uppnám, þar logi allt í reiði eftir þetta síðasta útspil Ágústar, sem þykir nota nefndarskipun sína í persónulegum pólitískum tilgangi.

Á meðan er málaflokkurinn í algjörri biðstöðu, frumvarp til breytinga á barnalögum sett á salt í allsherjarnefnd og allar fyrirhugaðar breytingar settar í bið. Allir bíða eftir niðurstöðum nefndar, sem virðist ekki vera að gera neitt, amk ekkert í samlíkingu við það sem vel mannaðar nefndir frændþjóðanna gerðu. Þar voru engin pólitíkusar við stýrið.




Þorgerður vann

24. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að Ríkissjónvarpið hafi tryggt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, sigur í fjölmiðlastríðinu sem Össur Skarphéðinsson bloggaði um að væri í gangi milli hennar og Dorrit Moussiaeff, eiginkonu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í tengslum við Ólympíuleikana í Kína.

Eins og kunnugt er flýtti Þorgerður Katrín sér til Kína um leið og ljóst var að Islendingar mundu leika um gullverðlaun í handknattleik við Frakka. Þá voru Ólafur Ragnar og Dorrit kominn til Kína til þess að fylgjast með handobltanum og lokaathöfn Ólympíuleikanna. Össur rifjaði upp að Þorgerður Katrín sat heima þegar Ólafur Ragnar var settur í forsetaembættið í fjórða sinn um síðustu mánaðamót “ásamt nokkrum öðrum heimastjórnarráðherrum, og allir tóku það sem pólitískt diss gagnvart þeim hjónum,” eins og Össur orðaði það.

Og Össur bætti við: “Nú verður Þorgerður Katrín að vinna daginn og slaginn um athygli fjölmiðlanna til að heimastjórnin haldi sjó, og snýti ekki rauðu einn ganginn enn.”

Orðið á götunni er að í raun sé þetta blogg Össurar til marks um þann pirring sem er í ráðherra- og þingliði Samfylkingarinnar vegna þess að þeim þykir Ríkissjónvarpið ganga langt í að hygla Þorgerði og öðrum ráðherrum Sjálfstæðisflokksins.

Í tengslum við sigurgöngu handboltalandsliðsins hafa birst myndir af og viðtöl við fimm af sex ráðherrum Sjálfstæðisflokksins frá því á föstudag, - alla nema Guðlaug Þ. Þórðarson. Í tilefni af úrslitaleiknum ræddi fréttastofan í kvöld við Þorgerði Katrínu en hafði ekkert við forsetahjónin að tala.




Ólíkt höfumst við að

24. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að ef að pólitísk siðmenning hinna Norðurlandanna hefði einhvern tímann náð til Íslands, væru þeir borgarfulltrúar sem fóru í fræga veiðiferð í Miðfjarðará í fyrra á veiðileyfum Baugs búnir að segja af sér.

Eftirfarandi setningu er til dæmis að finna í siðareglum fyrir embættis- og/eða stjórnmálamenn í Borås, sem meðalstór bær í Svíþjóð. Fjöldi íbúa þar er ríflega 100 þúsund:

“Anställda eller förtroendevalda [stjórnmálamenn] i Borås kommun får inte komma i beroendeställning till servicetagare, kunder, leverantörer eller andra.”

Ætla má að laxveiðiferðir falli undir “...  beroendeställning till servicetagare, kunder, leverantörer eller andra.” Með öðrum orðum, að vera háður þeim sem kaupa þjónustu af borginni. Víðast hvar á norðan Alpafjalla falla laxveiðiferðir í boði orkufyrirtækja eða annarra aðila sem eiga í viðskiptum við opinberar stofnanir undir mútur  - spillingu. Þeir embættis- eða stjórnmálamenn sem yrðu uppvísir af að þiggja slíkar “gjafir” af hendi hagsmunaaðila á borð við Baug yrðu mjög sennilega að segja af sér. Kröfur um afsögn yrðu enn harðari ef í ljós kæmi að mánuði eftir veiðiferðina, utanlandsferðina eða rausnarlegt boð á veitingahús hefður viðkomandi stjórnmálamenn tekið ákvörðun á borð við REI sem augljóslega gagnaðist Baugi.




Við skrifum bara alvöru fréttir

22. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að menn sakni þess að Mogginn en kannski sérstaklega þó Stöð 2 fjalli eitthvað um ferðina í Miðfjarðará í fyrra þar sem Baugur pantaði 10 veiðileyfi sem svo dreifðust einkennilega strategískt á aðila sem síðar áttu eftir að koma saman í, og sprengja, REI málið sællar minningar. Aðrir miðlar tóku við sér eftir að fiskisagan flaug fyrst hér í Orðinu á götunni, vísir.is einna helst, en líka Fréttablaðið. Ekki að mönnum komi sérlega á óvart þögn Moggans i mikilsverðum málum, en Stöð 2, líka?

Bent er á annars staðar á Eyjunni í dag að á Fréttastofu Stöðvar 2 ráði nú ríkjum Steingrímur Ólafsson, sem svo kappsamlega fjallaði á sínum tíma á vefsíðu sinni um ágreining á Stöð 2 vegna umfjöllunar fréttastofunnar um laxveiðiholl Geirs H. Haarde og Kaupþings. En gerðist svo síðar blaðafulltrúi Halldórs Ásgrímssonar þegar einn í Miðfjarðarárhollinu, Björn Ingi Hrafnsson, var aðstoðarmaður hans.

Nema Orðið á götunni er að svar Steingríms núna um þögnina um þetta tiltekna laxveiðimál í fréttum Stöðvar 2 hafi verið: “Við skrifum bara alvöru fréttir.”

Dauðans alvara það.




Engin Yfirtökunefnd að skoða yfirtökur?

22. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að engin Yfirtökunenfd sé nú starfandi þar sem þriggja ára skipunartíma hennar hafi lokið þann 1. júlí s.l.  Að nefndinni stóðu Kauphöll Íslands hf., Eignarhaldsfélag hlutafélaga ehf. (félag skráðra hlutafélaga), Fjármálaeftirlitið, Eignarhaldsfélag lífeyrissjóða um verðbréfaþing ehf., Samtök banka og verðbréfafyrirtækja, Samtök fjárfesta, Seðlabanki Íslands, Verslunarráð Íslands og viðskiptaráðuneytið. Markmiðið með stofnun hennar var að efla hlutabréfamarkað með því að greiða eftir því sem við verður komið úr álitaefnum sem snerta yfirtökur.

Þó talið sé að nefndinni hafi að ýmsu leyti tekist ætlunarverkið: Að breyta hugsunarhættinum og hvernig markaðsaðilar hér á landi hegðuðu sér við yfirtökur þá er Orðið á götunni samt að það skjóti nokkuð skökku við að FME sé nú einu ætlað þetta aðhalds- og eftirlitshlutverk sem nefndin sinnti.

Því álitamálum í yfirtökum hafi þrátt fyrir allt ekkert fækkað, nema síður sé.




Tveir vinir og einn í fríi

22. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að framsóknarmenn í Reykjavík hafi margir klórað sér í hausnum yfir þeim fréttum að Óskar Bergsson hafi skipað Guðlaug G. Sverrisson en ekki Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, sem formann stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.

Guðlaugur er reyndur flokkshestur sem hefur ágæta reynslu af stjórnmálastarfi en Orðið á götunni er að hann hafi enga reynslu í orkumálum eða af því að axla ábyrgð á rekstri og stefnumótun fyrir stærstu fyrirtæki landsins.

Orðið á götunni er að margir framsóknarmenn hafi talið augljóst að Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, fyrrverandi iðnaðarráðherra, fyrrverandi Seðlabankastjóri, fyrrerandi rektor á Bifröst og fyrrverandi stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, yrði gerður að formanni OR. Óskar verði krafinn skýringa á því að hann hafnaði Jóni, sem vitað er að var tilbúinn til starfa.




Með baklandið í farangrinum

21. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að eitt síðasta embættisverk Ólafs F. Magnússonar, sem borgarstjóra Reykvíkinga, hafi verið að fara með samgöngunefnd Alþingis að skoða samgöngumannvirki á höfuðborgarsvæðinu.

Nefndin var á ferð um höfuðborgarsvæðið í rútu sem sótti borgarstjórann í Höfða og beið þar nokkra stund en eftir að fyrirspurnum innan úr höfða um fjölda lausra sæta í rútunni hafði verði svarað kom borgarstjóri út í fylgd þriggja manna - karlmannanna sem kom í ljós að voru þeir sömu og sátu við hlið borgarstjóra á blaðamannafundinum þar sem tilkynnt var um inngöngu hans í Frjálslynda flokkinn. Borgarstjóri kynnti sig og félaga sína fyrir þingmönnum með sama nafni: “Ólafur F. Magnússon.”

Frá Höfða var ferðinni haldið áfram með þingmennina, borgarstjórann og félaga hans innanborðs, auk embættismanna borgarinnar sem veittu þingmönnum upplýsingar um samgöngumál í borginni.




Flýgur fiskisaga

20. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að það sé ekki næstum því jafnlíflegt í veiðihúsum helstu laxveiðiáa landsins í sumar og var í fyrrasumar. Þetta sést glögglega þegar menn lesa dagbækurnar sem vitna um hverjir voru saman í hollum að veiða í fyrra.

Orðið á götunni er að veiðidagbókin í Miðfjarðará sýni að fyrir um það bil ári síðan voru þar saman í holli Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, Guðlaugur Þ. Þórðarson, heilbrigðisráðherra, Haukur Leósson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, Stefán Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs, og einhverjir fleiri. Þá var ennþá veisla í landinu og þótt einhver skjálfti væri á mörkuðum datt fáum í hug að mesta fjármálakreppa áratugum saman væri að ganga í garð. Orkuútrásin var að komast á fullt, Reykjavík Energy Invest var að verða til og skömmu síðar gerði það fyrirtækið stóra samninga um erlend verkefni.

The rest is history... og Orðið á götunni er að Guðlaugur, Vilhjálmur og Haukur fari ekki saman í Miðfjarðarána í sumar.

---

Fiskisöguviðbót á hádegi - Löxunum hefur fjölgað í veiðisögu Orðsins á götunni frá því í morgun. Vísir.is stökk af stað og hefur nú fyllt út í söguna með fleiri nöfnum, þar á meðal Björns Inga Hrafnssonar og Lárusar Welding (sem þó boðaði forföll) auk þess að festa tímasetningar og fjölda veiðileyfa.

Vísir.is leiðir líka í ljós að borgarstjóranum þáverandi, svo og fulltrúum borgarinnar, þeim Birni Inga og Guðlaugi Þór (sem þá var reyndar orðinn heilbrigðisráðherra) var svo umhugað um jafnstöðu kynjanna í hollinu, að þeir tóku eiginkonur sínar með í túrinn.




Borgarstjórnarfundur fyrir hádegi í fyrsta sinn

19. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að tímasetningar þeirra borgarstjórnarfunda þar sem sjálfstæðismenn tilkynna um valdaskipti séu sérkennilegar. Fundurinn  í janúar þegar meirihlutinn með Ólafi F. Magnússyni tók við og þar sem allt fór upp í loft hófst ekki klukkan tvö e.h. eins og aðrir borgarstjórnarfundir heldur kl. 12:15.

Og núna á fimmtudaginn hefur svo borgarstjórn verið boðuð til fundar kl. 10 f.h. Það mun vera í fyrsta skipti sem borgarstjórnarfundur hefur verið boðaður fyrir hádegi.




Íslandsmet Pálma ógilt sökum meðvinds

17. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að menn hafi dundað sér við það um helgina að reyna að átta sig á púslinu í nýjustu stórviðskiptum Pálma Haraldssonar í Fons: Sölunni á bréfum hans í Iceland-verslunarkeðjunni, sem Pálmi kallar sennilega Íslandsmet í hagnaði - 77 milljarðar króna og samtímis kaupum Fons á eftirstandandi hlut Stoða (áður FL Group) í Northern Travel Holdings.

Í ljós kemur svo að Stoðir eru á meðal kaupenda að hlut Fons í Iceland og láti á móti hlutinn í Northern Travel Holding. Ekkert fylgdi í fréttum af þessu hvort reiðufé skiptir um hendur í þessum viðskiptum, en viðskiptatengsl Stoða, Baugs og Fons eru öllum kunnug sem fylgst hafa með íslensku viðskiptalífi síðustu ár. Spurt er hvort þetta sé ekki hálfgildings “Potemkin-hagnaður” hjá Pálma, þar sem eignir skipta um eigendur innan sömu viðskiptasamstæðu á háu gengi - eins og oft áður.

Í núgildandi Íslandsmeti í hagnaði - sölu Novators Björgólfs Thors Björgólfssonar á BTC í  Búlgaríu, þar sem hagnaður Novators nam tæpum 84 milljörðum króna á núverandi gengi - greiddi bandaríski fjárfestingarisinn þó fyrir félagið í beinhörðum peningum.

Það vakti líka athygli að upplýsingar um þessi viðskipti koma aðeins frá seljandanum en enginn kaupandi vill enn orða sig við þau.  Orðið á götunni er því að Íslandsmet Pálma í hagnaði sé ógilt. Það hafi verið of mikill meðvindur.




Fjórir af sjö fyrir borð

15. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að óvenjulegt vandamál blasi við Framsóknarflokknum í Reykjavík ef Marsibil Sæmundardóttir, varaborgarfulltrúi stendur við yfirlýsingar sínar í Fréttablaðinu í morgun um að styðja ekki nýja meirihlutasamstarfið við Sjálfstæðisflokkinn. Hvorki fleiri né færri en fjórir af efstu sjö frambjóðendum B-listans við síðustu borgarstjórnarkosningar eru þá farnir fyrir borð - og er þá ekki tekin með í reikninginn sú staðreynd að Anna Kristinsdóttir afþakkaði sæti á listanum.

Marsibil Sæmundardóttir er nú fyrsti varamaður Óskars Bergssonar. Hún lenti í 4. sæti prófkjörs framsóknarmanna fyrir kosningarnar 2006. Óskar, sem nú er oddviti listans, lenti þar í þriðja sæti á eftir Birni Inga Hrafnssyni og Önnu Kristinsdóttur. Þau tvö eru ekki lengur starfandi - Anna sætti sig eins og fyrr sagði ekki við úrslit prófkjörsins en Björn Ingi sagði af sér í byrjun þessa árs eins og allir þekkja.

Í fimmta sæti prófkjörsins hafnaði Ásrún Kristinsdóttir, hönnuður. Hún skipaði svo fjórða sæti framboðslistans - þ.e. næsta sæti á eftir Marsibil. Orðið á götunni er að Ásrún sé nú búin að segja sig úr flokknum. Það hafi hún gert vegna óánægju með að hafa ekki fengið að takast á við nægilega mörg verkefni fyrir Reykjavíkurborg meðan Björn Ingi Hrafnsson var oddviti.

Í fimmta sæti framboðslistans var Steinarr Björnsson, læknir, en hann er fluttur úr landi og stundar nú nám í Svíþjóð.

Orðið á götunni er að það séu þess vegna horfur á því að frambjóðendurnir í 2. og 6. og 7. sæti B-listans verji vígið í nýja samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Sjötta sætið skipaði Helena Ólafsdóttir, knattspyrnukona og þjálfari KR, en þar á eftir er Gerður Hauksdóttir, mágkona formannsins Guðna Ágústssonar, en hún skipaði 7. sætið á B-listanum 2006.




Nýr hvellur en sama sprengiefni

14. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að það séu meiri líkindi en virðast í fljótu bragði milli atburða í Ráðhúsinu núna og fyrir tæpu ári síðan þegar samstarf sjálfstæðismanna og framsóknarmanna sprakk í loft upp út af Reykjavik Energy Invest.

Það hefur mikið gengið á í samstarfi sjálfstæðismanna og Ólafs F. eins og fram hefur komið í umræðum um virkjanamál, Laugaveginn, Listaháskólann og brottrekstur Ólafar Guðnýjar. Eins og kunnugt er hefur varla mátt anda í átt að borgarstjóranum án þess að hann telji heilindi sín dregin í efa og krefjist afsökunarbeiðni. Þegar það spurðist svo út að borgarstjóri ætlaði að gera Gunnar Smára að aðstoðarmanni í stað Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur þá var komið yfir þolmörk nokkurra borgarfulltrúa sjálfstæðismanna, með oddvitann Hönnu Birnu í broddi fylkingar. Ólafur F. reyndi að milda málið með því að ráða Gunnar Smára ekki sem aðstoðarmann heldur ráðgjafa í upplýsingamálum en það varð ekki aftur snúið.

En hver eru líkindin með því sem er að gerast nú og því sem gerðist í fyrra? Orðið á götunni er þetta: REI-málið kom við taugakerfi Hönnu Birnu, Björns Bjarnasonar, Davíðs Oddssonar og fleiri vegna þess að þar átti að starfa með Jóni Ásgeiri og Baugsfyrirtæki. Gunnar Smári minnir sömu borgarfulltrúa og foringja Sjálfstæðisflokksins líka á átökin í Baugsmálinu. Það er meira en taugarnar þola eftir allt það sem á undan er gengið í samstarfinu við Ólaf F. Magnússon. En rétt eins og í REI-málinu voru nokkrir borgarfulltrúar sjálfstæðismanna sem hafa ekkert á móti því að vinna með Gunnari Smára. Það eru einmitt sömu aðilar og vildu vinna með Jóni Ásgeiri og Baugi á vettvangi REI.




Hanna Birna og Kjartan funduðu á 101

12. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna og Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi átt fund á Hótel 101 í Reykjavík í dag.

Kjartan er reyndasti herforingi Sjálfstæðisflokksins en hann var framkvæmdastjóri í tíð þriggja formanna flokksins. Ekki er að efa að Hanna Birna getur sótt mörg ráð í reynslubanka Kjartans nú þegar hún er að feta sín fyrstu skref sem leiðtogi borgarstjórnarflokksins. Þau eru gamlir samstarfsmenn af skrifstofu Sjálfstæðisflokksins þar sem Hanna Birna var aðstoðarframkvæmdastjóri Kjartans áður en hún hóf sinn pólitíska feril og haslaði sér völl í borgarstjórn.

Orðið á götunni er að auðvitað hafi meginefni fundarins verið ástandið í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem spurningin sem sjálfstæðismenn spyrja sig er þessi: Er einhver framtíð í þessu samstarfi við Ólaf F. Magnússon? Eða er best að senda Óskari Bergssyni SMS og láta hann vita að sjálfstæðismenn séu “til í allt án Óla.”

Nú þegar hafa sjálfstæðismenn þreifað á möguleikanum á að styrkja núverandi meirihluta með því að fá Óskar um borð sem þriðja hjól undir vagninn en það tilboð var hlegið út af borðinu í herbúðum Framsóknarflokksins.




Hvar er rammaáætlun?

12. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að vinna að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma gangi ekki hratt og örugglega. Ráðherra hefur reynt að sparka í klárinn og fundur er boðaður í næsta mánuði.

Sjálfstæðisflokkurinn - Illugi Gunnarsson, Þorgerður Katrín og fleiri hafa sagt að gefa verði út ákvörðunartöku um virkjanir og stóriðju eigi síðar en strax. Ekki sé hægt að bíða í tvö ár eftir niðurstöðu Rammaáætlunar.

Orðið á götunni er að bóndabeygja Samfylkingar í málinu sé þannig heldur að kreppast, þar sem samtímis þurfi að viðhalda áherslum Fagra Íslands og sækja fram í fjölbreyttari orkunýtingu en hingað til, þar sem stóriðja hefði ekki lengur sjálfvirkan forgang.

Sem dæmi um vandann - og um leið trúverðugleika stjórnvalda - er að þrátt fyrir að í  fyrri áfanga rammaáætlunar hafi Þjórsárver verið sett í hæsta verndarflokk, leggst Sjálfstæðisflokkurinn enn gegn friðlýsingu veranna í heild sinni. Takist Samfylkingunni ekki að ljúka því máli - eða ljúka því illa - verður erfitt fyrir flokkinn að vísa til stóru áfanganna í umhverfismálum þegar nær dregur kosningum.




Fá þau Óskar inn?

10. ágúst, 2008

Orðið á götunni er að sáraeinföld ástæða sé fyrir því að Óskar Bergsson borgarfulltrúi framsóknarmanna sé ekki farinn að fá sms frá sjálfstæðisfulltrúnum um að þau séu til í allt með honum án Ólafs: Vilhjálmur og Kjartan vilja einfaldlega ekki viðurkenna að meirihlutinn með Ólafi hafi verið mistök.

Hinar tvær ástæðurnar séu veigaminni: að Sjálfstæðisflokkurinn hlaupi ekki úr stjórnarsamstarfi (allir myndu fyrirgefa það í þetta skipti) og að enn ein meirihlutaskiptin fari í taugarnar á kjósendum (sama ástæða).





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar