Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir september, 2008

Klikkuð króna

30. september, 2008

Orðið á götunni er að verslunarumhverfið með krónuna sé orðið  svo bjagað  að æ færri treysti sér nú orðið til að dvelja þar - og séu einfaldlega að hypja sig burt. Þannig hafi a.m.k. einn norrænn banki tilkynnt lokun á gjaldeyrisstöður í íslensku krónunni í dag.

Furðulegir tíma, segja menn. Og sögurnar fljúga.  Einna rosalegust er sú sem gengur milli manna í bankakerfinu um að Novator hafi staðið í stórtækri krónuverslun frá London og halað inn milljarða á krónufallinu síðustu daga. Í sumum útgáfum er talað um tugi milljarða.




Hættir að borga í bankanum

29. september, 2008

Um nokkurt skeið hefur orðið á götunni verið að margir af helstu skuldunautum íslensku bankanna hafi, vegna eigin lausafjárþrenginga, fyrir nokkru hætt að greiða afborganir af lánum sínum, en haldið áfram ða greiða vextina.

Orðið á götunni er að um þessar mundir banki margir skuldunautanna uppá í bankanum sínum með þau skilaboð að nú séu þeir einnig hættir að borga vextina – þeir ráði einfaldlega ekki við það og bankinn verði bara að sýna þeim þolinmæði.

Hvað annað getur bankinn svo sem gert?




Mishkin til bjargar á ný?

27. september, 2008

Orðið á götunni er að þó Geir H. Haarde hafi ekki átt þá lykilfundi sem ýmsir hér heima töldu hann nauðsynlega þurfa að eiga í New York í vikunni (Sarkozy, Merkel, Brown til að spyrja þá um EES-evruna) þá hafi hann samt átt þar lykilfund, sem reynst gæti notadrjúgur á stórvarasömum tíma framundan í efnahagslífinu.

Geir og Tryggvi Þór Herbertsson efnahagsráðgjafi hans hittu nefnilega dr. Frederic S. Mishkin prófessor við Columbia háskóla í New York, sem skrifaði skýrsluna frægu um fjármálastöðugleika á Íslandi með Tryggva vorið 2006, sem þá snéri nánast nótt í nýjan dag fyrir íslenska bankakerfið. Mishkin lét af störfum í bankastjórn bandaríska Seðlabankans 31. ágúst sl. til þess að einbeita sér að kennslu og ráðgjafarstörfum.

Orðið á götunni er hins vegar óljóst á þessu stigi um það, hvort annað formlegt samstarf þeirra Tryggva um efnahagslausnir sé í bígerð. Það þykir þó ekki útilokað því löngu þykir einsýnt að einsmannsher Tryggva í efnahagsráðuneytinu við Lækjartorg þurfi á liðsstyrk að halda. En allt kostar: Fyrr á þessu ári var upplýst að Viðskiptaráð Íslands greiddi Mishkin rúmlega tíu milljónir króna fyrir aðstoð hans 2006.

Á meðan skýrist hvort Mishkin kemur til bjargar er orðið á götunni að Ísland eigi víðar hauka í horni í bandarísku efnahags- og fjármálalífi. Einn þeirra sé Gauti Eggertsson (bróðir Dags B) sem nú starfar sem hagfræðingur hjá Seðlabankanum í New York.




Guðni húðskammaði Birki Jón

26. september, 2008

Orðið á götunni er að Guðni Ágústsson hafi hellt sér yfir Birki Jón Jónsson þingmann flokksins og húðskammað hann á skrifstofu flokksins í fyrradag fyrir þingsályktunartillöguna, sem Birkir hyggst leggja fram á Alþingi í haust um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla fyrir næsta vor um ESB aðildarviðræður.

Guðni hefur allt á hornum sér vegna tillögunnar og finnst allt of geyst farið. Hann vill meina, þrátt fyrir að hafa sjálfur lagt upp þá Evrópustefnu sem Birkir Jón telur sig vera að framfylgja, að tillaga um þjóðaratkvæði sé það stórt mál og stór ákvörðun að hún verði ekki tekin nema á flokksþingi, þ.e. í mars nk. Eins setur hann það fyrir sig að engin lög séu til um þjóðaratkvæðagreiðlsur.

Grein um tillöguna birtist í Fréttablaðinu 18. september og þótti það sæta miklum tíðindum innan Framsóknarflokksins að þar kynntu tillöguna ásamt Birki þau Sæunn Stefánsdóttir, ritari flokksins, og Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi og fyrrum aðstoðarmaður varaformannsins, Valgerðar Sverrisdóttur. Það þykir til marks um þá áherslu sem Evrópumálin hafa nú fengið innan flokksins að áður stríðandi öfl skuli hafa lagt niður vopn og sameinast með þessum hætti.

Guðni virðist á góðri leið með að einangrast innan flokksforystunnar í Evrópumálinu því  fyrir utan Sæunni ritara sem flytur tillöguna með Birki Jóni og Páli hefur varaformaðurinn nú sagt að sér lítist vel á tillöguna og Jón Sigurðsson fyrrum formaður fagnað því sem hann kallar tímabært frumkvæði þremenninganna.

Guðni minnist hins vegar ekki einu einasta orði á tillöguna í leiðara á vefsíðu flokksins í dag þar sem hann ræðir fyrirhugaðan haustfund þingflokksins og landsstjórnarinnar á Húsavík þar sem “við þingmenn flokksins komum saman ásamt trúnaðarmönnum og ræðum komandi þing og þau mál sem fyrir liggja.”

Guðni segist hinsvegar tilbúin með aðra þingsályktunartillögu um Efnahagsráð Íslands: “um að þegar í stað verði myndaður samráðsvettvangur helstu aðila samfélagsins sem hafi það að verkefni að leita hagfelldustu leiða út úr þeim efnahagskröggum sem þjóðinni hefur verið stýrt inn í.”




Ólga vegna Freys á Fréttastofu Stöðvar 2

26. september, 2008

Orðið á götunni er að mikil ólga sé innan Fréttastofu Stöðvar 2 með nýtt hlutverk Freys Einarssonar sem “ritstjóra Opna gluggans” á stöðinni sem tilkynnt var á fréttafundi í gær. Opni glugginn er sá hluti dagskrár Stöðvar 2 sem er ólæstur, glugginn milli 18:18 til 19:30.

Freyr hefur verið þróunarstjóri 365 miðla, hægri hönd Ara Edwald og ritstjóri innri vefs og dagskrárdeildar Stöðvar 2 með meiru.

Nýtt og útvíkkað starfsvið Freys mun þýða að hann verður nú jafnframt yfirmaður Markaðarins á Stöð 2, Fréttanna, Íslands í dag, Kompás og væntanlega líka Mannamáls Sigmndar Ernis Rúnarssonar.

Ekki er með öllu ljóst hvernig þetta spilast saman við nýja ráðningu Óskars Hrafns Þorvaldssonar sem fréttastjóra Stöðvar 2 og Vísis né heldur þá hver staða Sigmundar Ernis Rúnarssonar verður.

Sigmundur Ernir hefur gegnt stöðu forstöðumanns fréttasviðs Stöðvar 2 síðan hann vék úr fréttstjórastól fyrir Steingrími Ólafssyni í fyrrahaust. Auglýsingar fyrir Mannamáls þætti hans eru þegar farnar að birtast á Vísi.

En eins og staðan er núna eru sýnilegir þrír yfirmenn og ritstjórar í opna glugganum: Freyr, Sigmundur og Óskar. Orðið á götunni er að glugginn sé varla nógu stór fyrir þá alla.




Frímiðar á familíuna

26. september, 2008

Orðið á götunni er að Hannes Smárason hafi fengið hugmyndina um frítt flug til æviloka úr starfslokasamningi sem hann gerði við Ragnhildi Geirsdóttir þegar hann lét hana fjúka á sínum tíma. Þá tókst henni að setja inn ákvæði um frítt flug til æviloka. Henni tókst þá líka að setja inn ákvæði um frítt flug með Icelandair og Flugfélagi Íslands fyrir syni eiginmanns hennar sem eru búsettir hjá móður sinni úti landi.

Fóstursynir Ragnhildar fljúga þannig frítt með Icelandair, hvert sem er í heiminum til átján ára aldurs.




Landsvirkjunarkandidat dagsins

25. september, 2008

Orðið á götunni er að lagt hafi verið að Jóni Þór Sturlusyni, aðstoðarmanni Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra, að sækja um forstjórastólinn í Landsvirkjun, þó ekki væri nema til að hækka standardinn á umsóknunum eftir að kvittur fór á kreik um að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefði gert sig líklegan.

Akademískur bakgrunnur Jóns Þórs er sagður eins og sniðinn fyrir stöðuna þó hann hafi ekki mikla stjórnunarreynslu. Hann hefur masters og doktorspróf í hagfræði og báðar ritgerðirnar fjölluðu um samkeppni á raforkumarkaði. Hann hefur líka skrifað talsvert um fyrirtækið og reyndar komið að málum þar.

Sjálfstæðismenn hafa engan augljósan kandidat í stöðuna og þar stendur enn yfir leit eftir að ljóst varð Halldór J. Kristjánsson hafði ekki áhuga.

Ingibjörg Sólrún er sögð beggja blands í málinu, þar sem Jón Þór hefur verið hennar helsti efnahagsráðgjafi og í yfirstandandi ölduróti efnahagsmála þyki henni verra að missa hann alveg. Jón Þór hefur m.a. unnið náið með Tryggva Þór Herbertssyni og Geir Haarde í ráðherranefnd um efnahagsmál.

Orðið á götunni er að engu að síður sé nafn Jóns Þórs ennþá í loftinu.




Ekki bara Þorsteinn

23. september, 2008

Orðið á götunni er að þetta sé ekki bara hjá Þorsteini.

Orðið á götunni er að vaxandi óþols og þverrandi virðingar gæti nú í garð Davíðs Oddssonar meðal ýmissa framámanna í Flokknum.

Eftir því sé t.d. tekið hvernig æ fleiri ráðherrar Sjálfstæðisflokksins reyni nú við hvert tækifæri að undirstrika fjarlægð sína við hann og stefnu Seðlabankans. Þannig fullyrti einn þeirra nýlega að einu tengsl Davíðs við ríkisstjórnina væru á vaxtaákvörðunardögum, og þá með því að ráðherrarnir horfðu á hann í beinum útsendingum frá Seðlabankanum.




Árni Mathiesen ekki í Landsvirkjun

22. september, 2008

Samkvæmisleiknum um næsta forstjóra Landsvirkjunar með Árna Mathiesen fjármálaráðherra í lykilhlutverki er lokið eftir að hann sló möguleikann út af borðinu í Kasljósi og sagðist ekki hafa sóst eftir því og ætti “alls ekki von á því að verða boðin staðan”.

Enda hvernig hefði það átt að gerast þegar ekki á að ráðstafa stöðunni til einhvers útvalins, eins og stjórnarformaður fyrirtækisins undirstrikaði svo rækilega, þegar auglýsing um hana var framlengd til 26. september.

Orðið á götunni eftir Kasljósviðtalið er að Árni kunni bráðlega að þurfa að upplýsa um annað atriði sem hann hefur ítrekað verið spurður um - hversu mikið hann á í Byr sparisjóð sem er að sameinast Glitni. Hann neitaði að svara því í Kasljósinu en sagðist um leið ætla að endurmeta það þegar af sameiningunni yrði.

Miðað við að Árni sagðist hafa metið stöðuna í ljósmæðradeilunni m.a. út frá umfjöllun fjölmiðla, þá má gera ráð fyrir að fjölmiðlaumfjöllun um Glitnis-Byrs samrunann þrýsti svo á ráðherrann að hann verði að leggja tölurnar á borðið.




Ráðherrar dagsins

21. september, 2008

Orðið á götunni er að ýmsir uppdrættir af stólaskiptum í ríkisstjórninni séu til skoðunar fari  svo að Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra verði metinn hæfastur umsækjenda um forstjórastöðu Landsvirkjunar.

Einn þeirra er svona: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verði fjármálaráðherra í stað Árna. Björn Bjarnason hætti og dómsmálaráðherra í hans stað verði Bjarni Benediktsson.

Orðið á götunni er að í þessum akademíska uppdrætti (sem hefur skýrst aðeins frá því í gær, þegar annað nafn var nefnt) sé gert ráð fyrir að Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrum rektor Háskólans í Reykjavík, verði næsti menntamálaráðherra og eftirmaður Þorgerðar Katrínar.




Efnahagsráðgjafarnir

20. september, 2008

Orðið á götunni er að Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem hvetur nú til tafarlausrar vaxtalækkunar í viðtali við Viðskiptablaðið, hafi verið efnahagsráðgjafi Davíðs Oddssonar á árunum 2002-2005. Það var aldrei hár prófíll á starfi Gunnars fyrir Davíð enda Davíð þá sinn eigin talsmaður í efnahagsmálum eins og nú. Gunnar, sem er einn gagnmenntaðasti hagfræðingur landsins með þrjár meistaragráður og doktorspróf frá Frakklandi, segir líka í viðtalinu í Viðskiptablaðinu að peningamálastefnan hafi ekki náð þeim árangri sem að var stefnt var á þessum árum sem hann var ráðgjafi Davíðs, 2002-2005.

Þeir hafa skipt um störf, Gunnar og nýi efnahagsráðgjafinn, Tryggvi Herbertsson. Þegar Davíð Oddsson flutti úr forsætisráðuneytinu hætti Gunnar sem efnahagsráðgjafi  og tók við starfi forstöðumanns Hagfræðistofnunar af Tryggva sem hóf störf í Askar Capital. Tryggvi gerðist svo efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde um það leyti sem Askar Capital lenti einn íslenskra banka illa í undirmálslánakrísunni.




Vissi Ingimundur betur?

19. september, 2008

Orðinu á götunni verður hugsað til eins af fyrrum forstjóra Eimskipa.  Þegar Ingimundur Sigurpálsson lét af störfum að eigin ósk sem forstjóri Eimskipa í desember 2004 taldi hann „öðrum betur gefið að fylgja eftir fyrirhuguðum breytingum á hlutverki og skipulagi“ félagsins.  Hann taldi „nauðsynlegt að fylgja eigin sannfæringu“ frekar en að fylgja nýrri stefnu félagsins, sem fylgdi nýtilkomnum yfirráðum Landsbankans á Eimskip.

Orðið á götunni veltir fyrir sér hvort Ingimundur hafi séð fyrir þann voða sem nú hefur nærri lagt óskabarnið á hliðina?




Ung framsókn svo til einhuga um ESB

18. september, 2008

Orðið á götunni  er að sögulegar sættir virðist hafa tekist í yngri hluta Framsóknarflokksins.

Nokkra athygli hefur vakið að Birkir Jón Jónsson, þingmaður, Páll Magnússon, fyrrverandi varaþingmaður og Sæunn Stefánsdóttir, ritari flokksins og fyrrverandi þingmaður, skrifuðu saman grein í Fréttablaðið í morgun þar sem þau kalla eftir þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Þau hafa hingað til verið talin heyra til andstæðum örmum í flokknum og keppinautar um forystuhlutverk í framtíðinni.

Birkir Jón er fyrrverandi aðstoðarmaður Páls Péturssonar og Páll fyrrverandi aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur. Þegar þeir skrifa saman grein er eftir því tekið innan flokksins og haft til marks um að þunginn í Evrópuumræðunni þar á bæ sé enn að aukast og að ungliðahreyfingin sé nánast einhuga í Evrópumálum þótt Bjarni Harðarson og Guðni Ágústsson eigi sér ýmsa stuðningsmenn meðal þeirra sem fæddir eru um miðja síðustu öld.




Óþjóðholla bandalagið

17. september, 2008

Orðið á götunni er að þegar ljóst var í upphafi árs hvert stefndi í efnahagsumhverfinu hafi verið tekin sú ákvörðun í efsta lagi eins af viðskiptabönkunum að leggjast á krónuna í þeim tilgangi að veikja hana svo um munaði.  Ástæðan var einfaldlega sú að menn þar á bæ sáu ekki aðra leið færa til þess að bjarga afkomu ársins 2008.

Orðið er að um leið hafi sömu aðilar smalað saman aðilum úr illa förnum útrásarhópi landsmanna og gefið þeim kost á að rétta sig af með því að vera með í leiknum og taka stöður á móti krónunni.

Orðið á götunni er að nokkrir einstaklingar, þar með talið æðstu stjórnendur eins af bönkunum, hafi verulega persónulega hagsmuni af veikingu krónunnar og að það styttist í að svokölluðu 180 markmiði verði náð, en það var það gengisvísitölu-markmið sem hópurinn setti sér þegar hann lagði af stað.

Gengisvísitalan endaði í nýrri methæð í dag, 175,95 stigum. Innan dagsins fór fór hún hæst í 178,45 stig.




Hvað verður nú um trúverðugleikann?

15. september, 2008

Orðið á götunni er að menn klóri sér í kollinum yfir framkvæmd vaxtastefnu Seðlabankans (svo ekki sé minnst á þá sem daglega reita hár sitt yfir henni).

Óðinn í Viðskiptablaðinu bendir á, að aðalhagfræðingur Seðlabankans hafi komið á fund Efnahags- og skattanefndar Alþingis bara fyrir nokkrum dögum síðan og sagt að sér finndist persónulega að bankinn ætti að hækka vextina. Það væri bara rökrétt af því að nú hafi teygst á verðbólgunni og hún sé ekkert á leiðinni niður alveg strax eins og spáð hafði verið.

Það þykir til marks um átök innan Seðlabankans um framkvæmd verðbólgumarkmiðsins að ekki skuli hafa verið hlustað á aðalhagfræðing bankans, sem vildi einfaldlega að bankinn gerði það sem hann hefur sagst ætla að gera og héldi þannig í það litla sem eftir væri af trúverðugleikanum.




Lýsiströtuleiðin viðruð í ljósmæðradeilunni

11. september, 2008

Orðið á götunni er að hugmynd hafi skotið upp kollinum við samningaborðið á fundi ljósmæðra og ríkisins í dag um aðgerðir í deilunni úr því verkföllin virðist ekki ná að skapa nægilegan þrýsting.

Hugmyndin að aðgerðunum er að vísu eldgömul. Hún þykir þó sérlega viðeigandi þegar þessi starfsgrein er höfð í huga, sérstaklega líka þegar verið sé að gefa í skyn við ljósmæður að þær séu óþarfar.

Hugmyndin er samsagt samantekin ráð kvenna um að gera ljósmæður óþarfar með öllu, gera eins og Lýsistrata hvatti til forðum til að stöðva Pelopsskagastríðið: að konur fari í allsherjarsamúðarverkfall - kynlífsverkfall!




Gylfi og Ingibjörg bæði fram

11. september, 2008

Orðið á götunni er að nú sé orðið ljóst að bæði Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti muni bjóða sig fram til forseta ASÍ á  ársfundi sambandsins 23.-24. október.

Bæða eiga þau sér stór baklönd innan hreyfingarinnar eftir margra ára dygga þjónustu, en landslagið þar er með ólíkum hætti. Bakland Ingibjargar meðal verslunarfólks er þannig einsleitara en hjá Gylfa en líka geysifjölmennt. Ingibjörg sem er jafnframt formaður Landssambands verslunarmanna hlaut 50% atkvæða í embætti varaforseta 2003 í kosningu gegn Kristjáni G. Gunnarssyni, formanni Starfsgreinasambandsins og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur.

Helsti styrkur Ingibjargar nú gæti falist í að skapa áhuga síns fólks á sögulegum úrslitum forsetakjörsins: að koma konu í fyrsta skipti í forsetastól samtakanna.

Þó bakland Gylfa sé óræðara en Ingibjargar er ljóst að hann nýtur víðtæks trausts og vinsælda innan samtakanna, ekki síst fyrir þekkingu sína á efnahagsmálum. Orðið á götunni er að Gylfi eigi allt eins góða möguleika og Ingibjörg, kannski meiri. Staða hans sé aftur á móti flóknari að vinna úr fram að ársfundinum, því styrkur hans til forsetakjörs kunni að miklu leyti að ráðast af gangi og niðurstöðu þess flókna samráðs sem nú sé reynt að koma á milli aðila vinnumarkaðarins, fjármálafyrirtækja og stjórnvalda.

Fleiri framboð gætu svo breytt myndinni snarlega þó engin séu fram komin enn. Ýmsir telja þó að kominn sé tími á að Starfsgreinasambandið, stærsta sambandið innan ASÍ, geri tilkall til forystu en formaður SGS hefur ekkert látið uppi um framboðsmálin.




Landflótti dagsins

10. september, 2008

Orðið á Strikinu í Kaupmannahöfn er að starfsfólk íslenskra flutningsfyrirtækja þar muni ekki eftir annarri eins traffík Íslendinga sem hafi nú tekið sig upp og séu að flytja með allt sitt hafurtask til Danmerkur.

Staðan á dönskum vinnumarkaði hefur verið fremur óvenjuleg að undanförnu. Þannig hélt atvinnuleysi áfram að minnka í Danmörku fram eftir sumri og í byrjun ágúst var það komið niður í 1,6%, það minnsta í 35 ár. Ástandið verður þó að teljast hálf skitzófrenískt því á sama tíma hefur gjaldþrotum fjölgað verulega, sérstaklega í byggingabransanum og bankar í framhaldinu riðað og fallið.

Ef spár um samdrátt ganga eftir er ekki hægt að ganga út frá því sem vísu að næg vinna verði til skiptanna fyrir alla þessa brottfluttu í Danaveldi. Orðið á götunni er að hluti þeirra að minnsta kosti sé þá með þetta í huga.




Eimskip í ólgusjó - móðurskip í var

9. september, 2008

Orðið á götunni er að það sé til marks um þrengingar í fjármálalífinu að Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hafi hætt við uppbyggingu á 3G-farsímakerfinu í Kanada, eins og Eyjan sagði frá fyrir helgi.

Novator hafði ásamt kanadísku og egypsku fjarskiptafyrirtæki unnið útboð í farsímaleyfi í Kanada, en áætlaður kostnaður var yfir 100 milljarðar íslenskra króna.  En nú hefur Novator sagt að þeir verði ekki með.

Orðið á götunni er að vaxandi óánægju gæti nú innan Novators með gengi Nova hér á Íslandi.  Innkoma þess á símamarkaðinn í lok síðasta árs var lífleg og orðið er að þeim hafi gengið vel að ná inn viðskiptavinum en að tekjurnar séu litlar sem engar og tapið verulegt. Orðið er að bæði Síminn og Vodafone segi nú mánaðarlega upp hundruðum viðskiptavina sem illa gengur að rukka - og að bæði Nova og Tal séu að sópa þá alla upp með slæmum rekstrarafleiðingum.

Orðið á götunni er því að fljótlega geti farið að hitna undir stjórnendum Nova enda Björgólfur ekki vanur að tapa peningum.

Þrengingarnar sem nú steðja að Eimskip eru svo líka farnar að hafa hamlandi áhrif á aðra fjárfestingarstarfsemi Björgólfs. Færi allt á versta veg, sem enginn vonar, gæti hefnd Björgólfs Guðmundssonar í því að eignast Eimskip, jafn sæt og hún var, á endanum breyst í þann beiska bikar að tengjast  gjaldþroti tveggja skipafélaga – Hafskip og Eimskip.




Ódýrara að keyra fullur en mótmæla virkjunum

8. september, 2008

Orðið á götunni er að samkvæmt nýjustu fréttum er ódýrara að detta í það og aka fullur en mótmæla virkjunum. Mótmælendur sem klifra upp í krana og “neita að hlýða lögreglunni” fá nefnilega 50-100 þús kr sekt, eins og hér er sagt frá en maður sem tekinn er fullur á bíl, og ekki í fyrsta skipti, og lýgur auk þess upp á bróður sinn, fær 60 þús kr sekt.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar