Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir desember, 2008

Sölvi hættir með Ísland í dag

30. desember, 2008

Orðið á götunni er að Sölvi Tryggvason umsjónarmaður Íslands í dag sé einn þeirra sem láti af störfum hjá Stöð 2 nú um áramótin.  Sölvi tók nýlega við stjórn þáttarins í námsleyfi Svanhildar Hólm.

Fleiri starfsmenn Stöðvar 2 fengu uppsagnarbréf í dag.

Orðið á götunni er að gerðar verði breytingar á Íslandi í dag sem feli m.a. í sér að Markaðurinn með Birni Inga og Mannamál Sigmundar Ernis Rúnarssonar verði hluti af þættinum á miðvikudögum og fimmtudögum.




Hvar eru myndböndin?

29. desember, 2008

Orðið á götunni er að starfsemi sú sem fram fer undir hatti Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins sé ekki eins “opin, aðgengileg og gegnsæ” og fyrirheit voru gefin um í upphafi. Þótt fundir í vinnuhópum nefndarinnar séu teknir upp á myndband og ættu þannig að geta verið aðgengilegir öllum áhugamönnum á vef hennar virðist sem upptökurnar hafi verið settar ofan í skúffur.

Orðið á götunni er að ástæðan fyrir þessu sé að áhrifamönnum í höfuðstöðvum flokksins, Valhöll, líki ekki stemmningin á fundum vinnuhópanna. Þykja of margir sem fundina sækja vera neikvæðir gagnvart þeirri línu sem flokksforystan virðist hallast að, að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu.




Fjölhæfur ráðgjafi

29. desember, 2008

Orðið á götunni er að yfirlýsingin sem Kaupþingsmennirnir Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson sendu frá sér í kvöld sé samin af Gunnari Steini Pálssyni almannatengli. Í yfirlýsingunni segir engir fjármunir hafi verið færðir með “óeðlilegum eða ólögmætum hætti” úr sjóðum Kaupþings, hvorki til eigenda hans né annarra. Engar skýringar eru hins vegar gefnar á því um hvað málið með hundrað milljarðana snýst. Varla dettur þó nokkrum manni í hug að Hreiðar Már og Sigurður viti það ekki.

Orðið á götunni er að Gunnar Steinn sé persónulegur fjölmiðlaráðgjafi Sigurðar Einarssonar og hafi verið lengi. En hann þjónar fleiri herrum. Hann hefur starfað mikið fyrir Björgólf Guðmundsson og var sérstakur ráðgjafi hans varðandi kynningu á einkarannsókninni í  Hafskipsmálinu fyrr á þessu ári. Gunnar Steinn er ekki ókunnugur skipafélögum því hann var á sínum tíma ímyndarráðgjafi Kolkrabbans.

Og Orðið á götunni er að samtímis því sem Gunnar Steinn hugar að orðspori og æru útrásarvíkinga sinni hann sérstökum ímyndarverkefnum fyrir utanríkisráðuneytið.




Ingibjörg fjármálaráðherra?

24. desember, 2008

Orðið á götunni er að hugmyndin að breytingum á ríkisstjórninni stafi ekki af vilja forystumanna stjórnarflokkanna til að láta einhverja ráðherra axla ábyrgð á bankahruninu. Ástæðan sé ósk Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar að fá annað ráðherraembætti en utanríkisráðuneytið. Ingibjörg Sólrún átti við veikindi að stríða í haust og gekkst undir tvo uppskurði eins og kunnugt er. Stöðug ferðalög um heiminn sem fylgja embætti utanríkisráðherra þykja ekki heppileg meðan hún er að jafna sig.

Orðið á götunni er að ekkert annað ráðherraembætti Samfylkingarinnar teljist nógu virðulegt, fínt og valdamikið fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. Þess vegna mun hún hafa nefnt það við Geir H. Haarde forsætisráðherra að hún gæti hugsað sér að verða fjármálaráðherra.

Orðið á götunni er að sjálfstæðismenn geti vel hugsað sér að láta Samfylkinguna fá fjármálaráðuneytið í staðinn fyrir utanríkisráðuneytið. Hver vill svo sem vera fjármálaráðherra í þeirri niðurskurðartíð sem nú er hafin? En vandinn er sá að ekki er samstaða um að Árni M. Matthiessen hafi einfaldlega stólaskipti við Ingibjörgu. Utanríkisráðuneytið er númer tvö í virðingarröð ráðuneyta og ráðherra númer tvö í Sjálfstæðisflokknum er vitaskuld Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður flokksins.

Orðið á götunni er að umræðurnar um að Björgvin G. Sigurðsson hætti sem viðskiptaráðherra stafi meðal annars af því að ekki er venja að viðskiptaráðuneyti og fjáramálaráðuneyti tilheyri sama flokki í ríkisstjórn. 

Af þessu er sprottinn ráðherrakapall sá sem Geir og Ingibjörg voru byrjuð að leggja en gáfust upp á.




Ríkisstjórnin veikari en áður

23. desember, 2008

Orðið á götunni er að ummæli Geirs H. Haarde á Stöð 2 í gærkvöldi um að engar breytingar verði gerðar á ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins á næstu vikum feli í sér ríkisstjórnarsamstarfið sé valt í sessi og líkur á kosningum á næsti ári hafi aukist.

Með breytingum á ríkisstjórn hefði verið gefið til kynna að stjórnarflokkarnir væru að treysta bönd sín og ætluðu sér að starfa saman út kjörtímabilið.

Orðið á götunni er að ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar um að stjórnarsamstarfinu væri sjálfhætt ef landsfundur sjálfstæðismanna samþykkti ekki að ganga til viðræðna um aðild að Evrópusambandinu hafi ráðið úrslitum um þessa ákvörðun sem gengur gegn því sem forystumenn Sjálfstæðisflokksins höfðu áður áformað.

Orðið á götunni er að ólíklegt sé að Ingibjörg Sólrún treysti sér til að gera breytingar á eigin ráðherraliði við þessar aðstæður. Það yrði þó neyðarlegt í ljósi þeirra ummæla sem hún lét falla fyrir nokkrum dögum um breytingar á ríkisstjórn fyrir jól.




Bréf ríkislögreglustjóra

22. desember, 2008

Orðið á götunni er að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hljóti að birta bréf það frá ríkislögreglustjóra sem hann segist hafa undir höndum og fjallar um kröfu hans um lögreglurannsókn á því hvernig bókhaldsgögn forsetaembættisins komust til fjölmiðla.

Össur segir á Eyjubloggi sínu að hann hafi verið að hlusta á lögreglukórinn á samkomu í Grafarvogskirkju á sunnudagskvöld og tekið eftir því að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri var ekki viðstaddur eins og aðrir yfirmenn lögreglunnar.

Össur skrifar:

Ef til vill hefur Haraldur ekki átt gengt úr vinnu. Það er mikið í gangi, og margt sem þarf að fylgjast með. Hugsanlega hefur hann verið að skrifa forsætisráðherra annað bréf út af nýbirtum pistli iðnaðarráðherra um upplýsingahvarf úr bókhaldi forsetaembættisins. Ég hlakka mikið til ef ég fæ afrit af því. Það bjargaði annars viðburðalítilli viku í iðnaðarráðuneytinu þegar okkur barst afrit af hinu fyrra.

Orðið á götunni er að þetta bréf ríkislögreglustjóra til forsætisráðherra hljóti að hafa verið skemmtilegt úr því að það bjargaði vikunni hjá iðnaðarráðherra.

En hvað stóð í bréfinu? Það þarf að upplýsa.




Fámáll um viðskiptin

22. desember, 2008

Orðið á götunni er að Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar sé einkennilega þögull um þátttöku sína í viðskiptalífinu í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu í dag til að verja sig fyrir “því ámæli að vera spilltur þingmaður” eins og hann orðar það.

Lúðvík vísar á bug sögum um að hann hafi verið með útrásarmönnum um borð í snekkju Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Flórída. Hann hafi aðeins komið um borð fyrir tilviljun þegar engir kaupsýslumenn voru á staðnum.

En um þátttöku sína í viðskiptalífinu hefur þingmaðurinn þessi fáu orð:

Í nokkur ár hef ég átt hlut í félagi sem hefur átt fasteignir. Í dag á félagið fasteign í Reykjavík. Þegar bankarnir komust í ríkiseigu ákvað ég að segja mig úr stjórn þess, vegna hættu á hagsmunaárekstrum. Félagið hefur aldrei fengið lán á sérkjörum í bönkum, engar skuldir hafa verið afskrifaðar, ekki ein einasta króna.

Orðið á götunni er að skynsamlegt hefði verið af Lúðvík að greina frá nafni þessa félags, hver hlutur hans sé og hvaða fasteign félagið eigi og hafi átt og hverjir séu meðeigendur hans. Við þær aðstæður sem þingmaðurinn lýsir í blaðagreininni sé það ávísun á áframhaldandi vantraust að leggja ekki öll spilin á borðið.




Harður slagur framundan

19. desember, 2008

Orðið á götunni er að harður slagur sé framundan um næsta formann Framsóknarflokksins. Fullvíst megi telja að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðingur gefi kost á sér, en hann hefur verið að kanna fylgi sitt víðs vegar um land að undanförnu eins og Eyjan hefur sagt frá.

Orðið á götunni er að gangi þetta eftir - og aðrir sterkir frambjóðendur komi ekki fram - muni baráttan einkum verða á milli Sigmundar og Páls Magnússonar bæjarritara í Kópavogi. Sterkur hópur stendur að baki Páli og hann hefur það fram yfir Sigmund að hafa verið virkur í flokksstarfinu undanfarin ár. Meðal stuðningsmanna hans eru margir helstu þungavigtarmenn Framsóknarflokksins.

Orðið á götunni er að grasrótin í Framsóknarflokknum vilji sjá róttækar breytingar á forystusveitinni og telji að ekki sé heppilegt að hún sé skipuð mönnum sem tengist með einhverjum hætti orsökum núverandi ástands í þjóðfélaginu. Það sé talinn veikleiki Páls að hafa verið aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur meðan hún var viðskiptaráðherra. Á þeim tíma komu útrásarvíkingarnir undir sig fótunum og regluverkið sem Valgerður bar ábyrgð á fylgdi ekki hinni hröðu þróun viðskiptalífsins. Páll Magnússon kunni að súpa seyðið af því.




Í hádeginu á Hótel Holti

18. desember, 2008

Orðið á götunni er að ekki séu sérstakir kærleikar með Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra og Jóhannesi Jónssyni kaupmanni í Bónus. Það kemur því ekki á óvart að ráðherrann hraðaði sér út úr matsal Hótels Holts í hádeginu í dag þegar Jóhannes kom þangað með Kristínu dóttur sinni og Einari Þór Sverrissyni lögmanni til að snæða síðbúinn hádegisverð.

Björn Bjarnason og frú Rut Ingólfsdóttir voru að ljúka við hádegisverð sinn þegar fylkingin gekk í salinn. Líklega hefur Björn ekki tekið eftir gestunum því samkvæmt frásögn sjónarvotts stóð hann snöggt á fætur og gekk á braut í stað þess að bíða eftir frúnni. Hann leit gestina aldrei augum og fæst því ekki úr því skorið hvort hann hefði kastað á þá kveðju eða ekki.

Líklegt er að Jóhannes, Kristín og lögmaður þeirra hafi verið að ráða ráðum sínum eftir nýju ákæruna í Baugsmálinu.




Ekki mótmælendur

18. desember, 2008

Orðið á götunni er að það hafi ekki verið mótmælendur sem hröktu Tryggva Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, úr starfi í Landsbankanum eins og látið hefur verið í veðri vaka. Það hafi verið nýja ákæran á hendur honum, Jóni Ásgeiri og fleiri Baugsmönnum vegna skattalagabrota sem hafi valdið því að Tryggva var ekki lengur vært í bankanum.




Viðskiptavildin er plat

18. desember, 2008

Orðið á götunni er Aðalsteinn Hákonarson endurkoðandi hafi á sínum tíma hætt hjá KPMG, þar sem hann var einn af aðaleigendum, vegna óánægju með þá tilslökun sem honum og mörgum af eldri kynslóð endurskoðenda fannst komin í endurskoðun ársreikninga íslenskra fyrirtækja.

Aðalsteinn starfar nú hjá embætti ríkisskattstjóra. Hann er höfundur greinarinnar í Tíund, fréttablaði ríkisskattstjóra, þar sem segir að íslenskt viðskiptalíf hafi á undanförnum árum þrifist á ákveðnum blekkingum sem gengu út á að sýna eins góða fjárhagsstöðu fyrirtækja og mögulegt var.

Orðið á götunni er að tilslökunin, sem um ræðir, hafi ekki síst falist í athugasemdarlausri áritun endurskoðenda á hækkunum á viðskiptavild félaga – nokkuð sem margir vilja meina að ráði því að vandinn í íslensku viðskiptalífi sé stærri en enn er komið fram.  Viðskiptavildin er plat eign sem ekki er í raun innistæða fyrir. Það vissi eldri kynslóð endurskoðenda og vildi ekki taka þátt í leiknum.




Náin tengsl í skilanefndum

17. desember, 2008

Orðið á götunni er að það sé með ólíkindum að ríkisstjórnin skuli ekkert aðhafast vegna náinna tengsla skilanefndarmanna gömlu bankanna við fyrrverandi starfsemi þeirra. Yfirlit um þessi tengsl er að finna í Fréttablaðinu í dag.

Þar kemur fram að Steinar Þór Guðgeirsson formaður skilanefndar gamla Kaupþings er framkvæmdastjóri Fram. Gjaldkeri sama félags heitir Stefán Hilmarsson og er framkvæmdastjóri hjá Baugi, einum stærsta lánþega Kaupþings.

Aðrir í skilanefndinni eru Knútur Þórhallsson, Bjarki H. Diego, Guðný Arna Sveinsdóttir og Guðni Níels Aðalsteinsson. Öll eru þau tengd gamla Kaupþingi.

Knútur var endurskoðandi Exista, stærsta hluthafans í Kaupþingi.  Hann skrifaði á sínum tíma upp á skráningarlýsingu fyrir samruna Kaupþings og Búnaðarbankans.

Bjarki var áður framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi.

Guðný Arna var fjármálastjóri hjá Kaupþingi.

Guðni Níels var framkvæmdastjóri  fjárstýringar hjá Kaupþingi.

Náin tengsl af þessu tagi er einnig að finna í skilanefndum Glitnis og Landsbankans.

Orðið á götunni er að þetta sé ótrúverðugt og ekki bjóðandi almenningi í landinu.

PS:

Eins og fram kemur í athugasemd hér fyrir neðan hafa tveir ofangreindra skilanefndarmanna, Guðný Arna og Bjarki, nýlega vikið úr nefndinni.

Hér er listi yfir allar skilanefndirnar.




Afsögn ritstjóra DV

16. desember, 2008

Orðið á götunni er að ritstjórar DV, feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, hljóti að segja af sér eftir að hafa verið staðnir að ósannindum og eftir að hafa gert tilraun til að ófrægja blaðamann.

Orðið á götunni er að afhjúpun Kastljóss Sjónvarpsins sé einhver mesti álitshnekkir sem íslenskur fjölmiðill hefur orðið fyrir.

Orðið á götunni er að atvikið muni leiða til þess að fleiri blaðamenn sem hafa merkilegar sögur að segja af afskiptum eigenda og framkvæmdastjóra og þjóna þeirra muni sýna það hugrekki að koma fram með þær.

Orðið á götunni er að tölvupóstar séu til sem sýni mögnuð afskipti af störfum blaðamanna.




Fær Hillary ekki fleiri gjafir?

15. desember, 2008

Orðið á götunni er að fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, frú Hillary Clinton, hafi móðgað forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson, illilega með því að selja listaverkið sem hann gaf henni árið 1999. Nú er verkið komið á uppboð á ebay.com og metið á smánarlega upphæð.

Orðið á götunni er að þegar Hillary Clinton kemur næst til Íslands, þá væntanlega orðin utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fái hún engar gjafir. Og verði ekki boðið til Bessastaða.




Þeir ráða ekki við Þorgerði

14. desember, 2008

Orðið á götunni er að staða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra sem varaformanns Sjálfstæðisflokksins sé svo sterk að ólíklegt sé að þeir sem geri tilraun til að steypa henni af stóli á landsfundi flokksins í janúar nái árangri.

Fjölmiðlar hafa verið með vangaveltur um að Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og Bjarni Benediktsson alþingismaður, sem líklega verður orðinn ráðherra um áramótin, renni hýru augu til embættis varaformanns. Þeir sjái það sem stökkpall í formannsstól flokksins. Hvorugur þeirra hefur þó staðfest að þeir hafi slík áform uppi.

Orðið á götunni er að óhugsandi sé að stemmning sé fyrir því innan Sjálfstæðisflokksins að fórna Þorgerði Katrínu. Bent er á að hún hafi eflst í embætti, sé skörungur í framgöngu og í rauninni eina konan sem eitthvað kveður að í forystusveit flokksins. Konur í Sjálfstæðisflokknum mundu aldrei láta það yfir sig ganga að karlarnir ýttu Þorgerði út.

Orðið á götunni er að eini möguleikinn á því að Þorgerður viki úr stól varaformanns sé að á landsfundinum verði gerð allsherjaruppreisn gegn forystunni , en ekki henni einni. Eða að Geir H. Haarde og Þorgerður ákveði bæði að víkja og axla þannig ábyrgð á bankahruninu sem varð á þeirra vakt.

Orðið á götunni er að líklegast sé að núverandi formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins fái á landsfundinum endurkosningu með miklu lófaklappi.




Atvinnurekendur og ESB

13. desember, 2008

Orðið á götunni er að það hljóti að vera forystumönnum Samtaka atvinnulífsins (SA) nokkurt áfall þegar skoðanakönnun á þeirra vegum sýnir að aðeins 43% félagsmanna  séu hlynntir því að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu meðan 40% félagsmanna eru andvígir.

Sautján prósent félagsmanna hafa ekki gert upp hug sinn.

Orðið á götunni er að í Húsi atvinnulífsins við Borgartún hafi menn átt von á miklu afdráttarlausari stuðningi við ESB. Þar hafi menn talað um að útgerðarmenn væru einangraðir innan samtakanna í andstöðu sinni við aðild.

Kannski er þessi undrun ástæða þess að Samtök atvinnulífsins (SA) voru ekki að flýta sér að birta niðurstöður könnunarinnar þannig að Björn Bjarnason ráðherra varð fyrri til og sagði frá þeim á vefsíðu sinni. Hann spurði jafnframt af hverju þær væru ekki gerðar opinberar.

Orðið á götunni er að þeirri spurningu þurfi forysta SA að svara.




Gunnar Bragi íhugar framboð

11. desember, 2008

gunnarbragisveinsson.jpgOrðið á götunni er að Gunnar Bragi Sveinsson, einn helsti forystumaður framsóknarmanna í Skagafirði, íhugi að gefa kost á sér til formennsku í flokknum.

Þegar hafa þrír tilkynnt um framboð: Höskuldur Þór Þórhallsson alþingismaður, Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi og Jón Vigfús Guðjónsson sjómaður á Akureyri.

Orðið á götunni er að Gunnar Bragi þyki sterkur frambjóðandi vegna þess að hann tilheyri hvorugum þeirra arma sem tekist hafa á í flokknum undanfarin misseri. Hann þykir hafa staðið sig vel sem oddviti sveitarstjórnar Skagafjarðar og á að baki langan feril í flokknum. Hann situr í miðstjórn Framsóknarflokksins.

Gunnar Bragi heldur úti bloggsíðu á vef Morgunblaðsins.

Orðið á götunni er að líkur á formannsframboði Sivjar Friðleifsdóttur séu nú hverfandi. Fram hefur komið í fjölmiðlum að Magnús Stefánsson alþingismaður hefur velt fyrir sér framboði en ekki gert upp hug sinn.




Bjarni Ben í ríkisstjórn

11. desember, 2008

Orðið á götunni er að Bjarni Benediktsson alþingismaður hafi hætt allri þátttöku í viðskiptalífinu vegna þess að innan fárra daga eða vikna verði hann orðinn ráðherra í ríkisstjórninni. Sennilegast er talið að einhverjar breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni um áramótin.

Orðið á götunni er að lengi hafi staðið til að þeir hefðu stólaskipti, frændurnir Björn Bjarnason og Bjarni Benediktsson. Það hafi tafist vegna bankahrunsins. Jafnvel hafi menn farið að efast um að ástæða væri fyrir stólaskiptum vegna óvissu um líftíma ríkisstjórnarinnar.

Orðið á götunni er að þegar Bjarni er orðinn ráðherra styrkist staða hans sem vænlegs forystumanns Sjálfstæðisflokksins. Sumir telja að hann muni láta til skarar skríða þegar forysta flokksins verður kjörin á landsfundi í janúar. Einkum staldra menn við hugsanlega samkeppni hans og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um varaformannsstólinn. Þau eru keppinautar um þingsæti í Suðvesturkjördæmi.




Eins og hinir auðmennirnir

11. desember, 2008

Orðið á götunni er að það hafi ekkert “gott auðvald” verið á Íslandi á gróðæristímanum eins og sumir vildu trúa. Auðmennirnir hafi allir skarað eld að sinni köku sem mest þeir máttu og enginn hugsað um almannahag eða gott viðskiptasiðferði. Nýjasta dæmið um þetta segja menn vera úttekt Morgunblaðsins á viðskiptaháttum Björgólfs Thors Björgólfssonar. Blaðið segir hann hafa hagnast um 800 milljónir króna á viðskiptum með hlutabréf þar sem hann sat sjálfur beggja vegna borðsins. Morgunblaðið boðar sams konar úttekt á viðskiptum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.

Þegar Björgólfur Thor kom fyrst fram á sjónarsviðið á Íslandi sagðist hann frekar vilja vera “lítill fiskur í stóru vatni” heldur en “stór fiskur í litlu”. Hann ætlaði að einbeita sér að viðskiptum utan Íslands. Það gekk ekki eftir nema að hluta því hann varð ásamt föður sínum einn umsvifamesti eignamaður og atvinnurekandi á Íslandi.

Þegar dönsku blöðin fóru að fetta fingur út í íslenska útrásarvíkinga lét Björgólfur Thor taka við sig viðtöl þar sem hann sagði sín vinnubrögð í viðskiptum allt önnur en Jóns Ásgeirs og félaga. Þetta vakti á sínum tíma mikla reiði og gremju innan útrásarhópsins.

Orðið á götunni er að úttekt Morgunblaðsins sýni að Björgólfur Thor hafi lagt sig eftir íslenska viðskiptamódelinu ekkert síður en aðrir auðmenn.




Markmið leynifundarins

9. desember, 2008

Orðið á götunni er að leynifundur Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra og Ögmundar Jónassonar þingflokksformanns VG um helgina hafi að hálfu Samfylkingarinnar verið hugsaður til skapa þrýsting á Sjálfstæðisflokkinn og bæta samningsstöðu Samfylkingarinnar.

Orðið á götunni er að það sé ekki tilviljun að frétt um fundinn hafi verið látin leka út.

Orðið á götunni telur að skilaboðin til Sjálfstæðisflokksins séu þessi: Ef þið komið ekki til móts við kröfur okkar (Davíð úr Seðlabankanum, umsókn um aðild að ESB og fleira) eru fleiri fiskar í sjónum. Við þurfum ekkert að vera í þessu stjórnarsamstarfi.

Eftir að VG opnaði á þjóðaratkvæði um aðild að Evrópusambandinu um helgina er stórri hindrun á vegi samstarfs VG og Samfylkingarinnar rutt úr vegi. 

Samfylkingin og VG gætu ýtt sjálfstæðismönnum út í kuldann og boðað til kosninga á næsta ári.

Á þessu hausti eru tuttugu ár síðan atburðir af þessu tagi gerðust síðast. Þá var sundurþykkja í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins undir forystu Þorsteins Pálssonar og kreppuástand byrjað í þjóðfélaginu. Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins hóf leynilegar þreifingar við Ólaf Ragnar Grímsson formann Alþýðubandalagsins. Þær leiddu til þess að stjórn Þorsteins sprakk og vinstri stjórn var mynduð.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar