Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir febrúar, 2009

Óheppileg heimsókn

28. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að það hafi hvorki verið sérstaklega smekklegt né skynsamlegt af Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, að hraða för sinni í Seðlabankann strax og fréttist að flokksbróðir hans og góðkunningi Svein Harald Øygard var kominn þar til starfa. Þar með gaf Stoltenberg til kynna - vafalaust óviljandi - að einhver sérstök tengsl væru á milli nýja bankastjórans og norsku ríkisstjórnarinnar. Svo á auðvitað ekki að vera; trúnaður hans er eingöngu við ríkisstjórn Íslands og Íslendinga.




Ingibjörg Sólrún hættir

27. febrúar, 2009

isg-rikisstjorn.jpgOrðið á götunni er að í dag eða á morgun muni Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tilkynna að hún verði ekki í framboði í þingkosningunum í vor.

Orðið á götunni er að Ingibjörg Sólrún muni jafnframt greina frá því að hún gefi ekki kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar á flokksþinginu í næsta mánuði.

Orðið á götunni er að Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi verði arftaki Ingibjargar Sólrúnar.




Forstjóri sviptur frelsi

26. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að Jóhann Óli Guðmundsson og Stefán Geir Þórisson lögmaður hafi haldið Ragnhildi Ágústsdóttur forstjóra Tals gegn vilja sínum í fundarherbergi fyrirtækisins í tæpa klukkustund í morgun. Þeir hafi meinað henni að hafa samband við lögmann.

Orðið á götunni er að Ragnhildur hyggist kæra þá félaga fyrir frelsissviptingu.

Hluthafadeilan í Tali náði nýjum hæðum í morgun eins og Eyjan hefur flutt fréttir af. Þá sneri Hermann Jónasson aftur til starfa sem forstjóri í framhaldi af úrskurði fjármálaráðuneytisins í deilumálinu í fyrirtækinu.




Reynir tekur Mannlíf yfir

25. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að Reynir Traustason ritstjóri DV hafi tekið yfir tímaritið Mannlíf og hyggist ritstýra því meðfram DV. Eyjubloggaranum Sigurjóni M. Egilssyni ritstjóra Mannlífs hefur verið sagt upp störfum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Reynir tekur við starfi af Sigurjóni. Hann var ráðinn meðritstjóri hans á DV 2007 og tók síðan blaðið yfir ásamt syni sínum, þegar Birtingur færði Sigurjón yfir á Mannlíf.

Orðið á götunni er að Sigurjón  M. Egilsson hafi áhuga á að spreyta sig á útgáfu sjálfstæðs fréttatímarits. En það verður vafalaust ekki auðvelt að fá menn til að styðja slíkt framtak fjárhagslega. Og ekki er auglýsingamarkaðurinn uppörvandi um þessar mundir. Kannski ætti Sigurjón að spyrja Steve Cosser, sem nú hefur misst af Mogganum en á sand af seðlum, hvort hann vilji styðja útgáfuna?




Davíð bætti stöðu sína

24. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að Davíð Oddsson hafi frekar styrkt stöðu sína í almenningsálitinu en hitt eftir viðtalið í Kastljósi í kvöld. Hann hafi fært málefnaleg rök fyrir stefnu sinni og vinnubrögðum í bankanum á undanförnum árum. Nú sé það stjórnvalda að svara því hvers vegna ekki var brugðist við eindregnum og ítrekuðum aðvörunarorðum hans.

Orðið á götunni er að meðal þeirra sem svara þurfi þessum spurningum séu þeir ráðherrar Samfylkingarinnar í núverandi ríkisstjórn sem einnig sátu í síðustu stjórn. Að hverju brugðust þeir ekki við aðvörunum Seðlabankans?

Orðið á götunni að það hafi verið ljóður á ráði Davíðs í Kastljósi að láta gremju sína og reiði bitna á Sigmari þáttastjórnanda sem gerði ekki annað en að spyrja þeirra spurninga sem brenna á vörum fólks og sérhver fréttamaður hefði varpað fram.

Orðið á götunni er að nú hljóti fjölmiðlar að fylgja eftir ýmsu því sem fram kom í viðtalinu við Davíð. Hver eru til dæmis þessi einkahlutafélög sem Davíð nefndi og sagði að frægt fólk í þjóðlífinu og stjórnmálamenn tengdust  og fengið hefðu óeðlilega fyrirgreiðslu í gömlu bönkunum?

Orðið á götunni er að viðtalið í Kastljósi breyti því ekki að innan fárra daga - kannski innan sólarhrings - verði Davíð hættur í Seðlabankanum. Orðið á götunni er að eins og mál hafa þróast þurfi frið um Seðlabankann sem ekki fáist nema breytt sé um yfirstjórn.




Davíð í Kastljósi

24. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að Davíð Oddsson Seðlabankastjóri hljóti að nota tækifærið og varpa sprengju inn í þjóðmálaumræðuna þegar hann mætir í Kastljós Sjónvarpsins í kvöld. Það blasir við að hann hefði aldrei samþykkt að sitja þar fyrir svörum ef hann hefði ekki einhvern boðskap til þjóðarinnar í farteskinu.

Mönnum er í fersku minni þegar Davíð birtist í Kastljósi í haust. Eftir það snerist öll umræðan í landinu um orð hans.

Ekki er ósennilegt að Davíð viðurkenni uppgjöf í Seðlabankanum í kvöld. Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að Seðlabankafrumvarpið verði afgreitt á Alþingi á morgun eða fimmtudag. Þá verður Davíð að fara úr bankanum.

En hvað svo? Orðið á götunni er að Davíð hljóti að hafa svar við því í Kastljósi kvöldsins.




Vilja styðja Höskuld

24. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að frambjóðendur í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og fulltrúar þeirra fylgist grannt með því hvort óvænt fjölgun verður í flokknum á næstu dögum. Kjördæmisþingið 15. mars, þar sem kosið verður um framboðslista flokksins, er opið öllum flokksbundnum framsóknarmönnum.

Orðið á götunni er að ýmsir sjálfstæðismenn á Norðurausturlandi geti eftir atburðina á Alþingi í gær vel hugsað sér að ganga í Framsóknarflokkinn - tímabundið að minnsta kosti - til að greiða götu Höskuldar Þórhallssonar. Slíkur liðsauki gæti ráðið úrslitum um það hvort hann eða Birkir Jón Jónsson skipar efsta sætið á framboðslista flokksins í kjördæminu í þingkosningunum.




Stjórnin veikari en áður

23. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir sé veikari en áður eftir atburði dagsins í þinghúsinu.

Í upphafi dags voru stjórnarliðar í sólskinsskapi. Þeir töldu fullvíst að Seðlabankafrumvarpið, eitt helsta forgangsmál ríkisstjórnarinnar við stjórnarmyndunina, yrði afgreitt úr viðskiptanefnd Alþingis um morguninn. Það yrði síðan að lögum síðdegis. Á þriðjudaginn yrði Davíð Oddsson farinn úr Seðlabankanum.

Þetta gekk ekki eftir. Orðið á götunni er að formaður viðskiptanefndar, Álfheiður Ingadótir, hafi verið brúnaþung þegar Höskuldur Þórhallsson framsóknarþingmaður sagðist ekki geta stutt tillögu hennar um að afgreiða frumvarpið til þriðju umræðu. Fréttin barst með eldingshraða í Stjórnarráðið. Orðið á götunni er að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi orðið öskureið og krafist þess að brugðist yrði við af fullri hörku. Ætlun hennar var að knýja framsóknarmenn til að samþykkja aukafund í viðskiptanefnd þar sem Höskuldur Þórhallsson yrði látinn skipta um skoðun. Gengi það ekki eftir vildi Jóhanna að forseti Alþingis beitti undanþáguákvæði í þingsköpum og kallaði frumvarpið úr nefndinni til almennrar atkvæðagreiðslu.

Framsóknarmenn höfnuðu báðum þessum leiðum. Jóhanna var því ekki ánægð á svip þegar hún kom af fundi með Sigmundi Davíð Gunnlaugsson síðdegis og varð að tilkynna samherjum sínum að þingfundum skyldi frestað. Afgreiðsla Seðlabankafrumvarpsins mundi tefjast fram eftir vikunni.




Wessman með Birni Inga

22. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að auðmaðurinn Róbert Wessman sé fjárhagslegur bakhjarl fréttavefsins Pressunnar sem Björn Ingi Hrafnsson ætlar að hleypa af stokkunum um næstu mánaðamót.

Pressan verður með aðsetur í Turninum við Smáratog í Kópavogi þar sem eru höfuðstöðvar Róberts.

Fram hefur komið að Róbert Wessman á 40% hlut í Viðskiptablaðinu. Hann hafði uppi áform um rekstur skurðstofu á Suðurnesjum, en ólíklegt er að það mál komist á rekspöl eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson hætti sem heilbrigðisráðherra og Ögmundur Jónasson tók við.

Róbert Wessman er hluthafi í Háskólanum í Reykjavík og jafnframt eigandi Capacent Gallup, sem er atvinnumiðlun, ráðgjafarstofa og sér jafnframt um skoðanakannanir og fylgist með notkun fjölmiðla.

Sagt er að gamall samstarfsmaður Björns Inga úr forsætisráðuneytinu í tíð Halldórs Ásgrímssonar, Steingrímur Sævarr Ólafsson, verði með honum á Pressunni. Steingrímur var upplýsingafulltrúi í ráðuneytinu, en kallaður spunameistari af andstæðingum Framsóknarflokksins. Hann var fréttastjóri Stöðvar 2 þar til í fyrrahaust.

Meðal annarra sem leggja Birni Inga lið er teiknarinn Henrý Þór Baldursson sem birt hefur margar smellnar myndir á bloggi sínu Skrípó.




Cosser með hærra tilboð?

22. febrúar, 2009

moggi-hadegismoar1.jpgEftir helgina skýrist væntanlega hvor eignast Morgunblaðið,  hinn dularfulli bresk-ástralski fjárfestir Steve Cosser eða Óskar Magnússon lögmaður og viðskiptafélagar hans.

Orðið á götunni er að tilboð Cosser hafi verið hærra en tilboð Óskars. Á móti vegur að ekki er víst að eigandi, sem er búsettur erlendis og getur ekki einu sinni lesið blaðið, sé eins traustvekjandi frá sjónarmiði Íslandsbanka sem áfram á mikilla hagsmuna að gæta í málinu.

Orðið á götunni er að hinn sterki orðrómur um að Cosser sé leppur íslenskra manna geti einnig spilað inn í þegar málið er metið. Vitað er að Cosser kynntist íslenskum auðmönnum í gegnum viðskipti við Kaupþingsmenn í London. Raddir heyrast um að hann gangi erinda Sigurðar Einarssonar fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings. Aðrir telja að hann sé í tengslum við Björgólfsfeðga eða Jón Ásgeir Jóhannesson.

Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hve íslenskum útrásarvíkingum mundi létta ef öflugir fjölmiðlar eins og Morgunblaðið og mbl.is mundu hætta að flytja um þá “leiðinlegar fréttir”.

Cosser hefur einnig sýnt því áhuga að eignast Viðskiptablaðið og fundað með forráðamönnum þess.

Þá kemur frá í frétt á Vísi að hann hefur fundað með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ara Edwald og rætt við þá um hugsanleg tengsl Árvakurs og 365 miðla.

Óskar Magnússon hefur ekki sagt frá því hverjir standi með honum að tilboðinu í Morgunblaðið. Það verði ekki upplýst nema þeir eignist blaðið. Orðið á götunni er að meðal þessara manna séu “Hagkaupsbræðurnir”, Jón og Sigurður Gísli Pálmasynir og ”Vestmannaeyjafjölskyldan”, þ.e. Guðbjörg Matthíasdóttir og sonur hennar Einar Sigurðsson. Þá er nafn Björgólfs Thors Björgólfssonar enn nefnt í þessu sambandi.




Óli Björn í framboð?

21. febrúar, 2009

oli-bjorn-karason.jpgOrðið á götunni er að Óli Björn Kárason ritstjóri hyggist taka þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kraganum. Framboðsfrestur rennur út í byrjun næstu viku.

Óli Björn er einkum þekktur úr fjölmiðlaheiminum. Hann hóf feril sinn á Morgunblaðinu og stofnaði síðan Viðskiptablaðið 1994 og ritstýrði því um árabil. Hann var einnig um tíma ritstjóri DV. Hann er einn þeirra sem nú standa á bak við fréttavefinn AMX. Óli Björn hefur skrifað tvær bækur um íslenskt viðskiptalíf, Valdablokkir riðlast (1999) og Stoðir FL bresta sem út kom fyrir síðustu jól.

Meðal annarra sem þátt munu taka í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kraganum eru þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem berjast um efsta sætið, Ármann Kr. Ólafsson, Jón Gunnarsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Óljóst er hvort Ragnheiður E. Árnadóttir fer fram í kjördæminu eða reynir fyrir sér í Suðurkjördæmi.




Breytingar á Mogganum

20. febrúar, 2009

Á mánudaginn verður væntanlega ljóst hverjir nýir eigendur Morgunblaðsins verða. Þótt Árvakur, útgáfufélag blaðsins, glími við himinháar skuldir og rekstur dagblaðs teljist tæplega arðvænleg iðja á tíma nets og kreppu bárust þrjú skuldbindandi tilboð í blaðið í dag. Kannski eru menn að sækjast eftir einhverju öðru en fjárhagslegum ágóða?

Orðið á götunni er að hver sem eignist blaðið feli breytt eignarhald í sér breytingar á mönnum í brúnni og á ritstjórninni. Forstjórinn, Einar Sigurðsson, er þegar búinn að ráða sig annað og því verður það eitt af fyrstu verkefnum nýju eigendanna að finna arftaka hans.

Orðið á götunni er að það verði hugsanlega líka skipt um ritstjóra.

Líklegt er að mjög fljótlega muni nýir eigendur draga eitthvað saman seglin í útgáfunni. Sagt er sunnudagsblaðið verði sameinað laugardagsblaðinu í einni helgarútgáfu eins og Fréttablaðið gerði um daginn. Óvissa ríkir um mánudagsútgáfuna.

Orðið á götunni er að Lesbókin, menningarlegt flaggskip Moggans, verði hugsanlega slegin af eða síðum fækkað.

Loks er það orðið á götunni að ekki kæmi á óvart að fréttir um miklar aðhaldsgerðir bærust einnig frá Fréttablaðinu fyrir mánaðamótin.




Rannveig Rist sagði nei

18. febrúar, 2009

Egill Helgason er ekki eina frægðarpersónan sem neitað hefur boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins um að fara í framboð fyrir flokkinn.

Orðið á götunni er að Sigmundur Davíð hafi gengið á fund Álfrúarinnar í Hafnarfirði, Rannveigar Rist, og boðið henni efsta sætið á lista flokksins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.

Rannveig þáði ekki boðið.

Orðið á götunni er að framsóknarmenn bindi vonir við það að sjónvarpsstjarna meðal ungs fólks leggi þeim lið í kosningabaráttunni.




Lúðvík í stað Gunnars?

18. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að Gunnar Svavarsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, hafi ekki verið kominn úr ræðustólnum á kjördæmisfundi flokksins, þar sem hann tilkynnti að hann ætlaði ekki í framboð í vor, áður en bollaleggingar voru hafnar um eftirmann hans.

Orðið á götunni er að í Hafnarfirði telji ýmsir að sterkasti leikurinn sé að tefla fram sjálfum bæjarstjóranum, Lúðvík Geirssyni, sem margir líta til sem framtíðarleiðtoga Samfylkingarinnar.

Sú kenning hefur einnig heyrst að ákvörðun Gunnars skapi Lúðvíki Bergvinssyni, þingmanni flokksins í Suðurkjördæmi, tækifæri til að skipta um vettvang og losa þannig flokkinn við togstreituna sem verið hefur á milli hans og Björgvins G. Sigurðssonar fyrrverandi viðskiptaráðherra, efsta manns á lista flokksins í Suðurkjördæmi.




Sigrún í stað Skúla

17. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að forystumenn Samfylkingarinnar séu þegar búnir að finna eftirmann Skúla Helgasonar sem lætur af starfi framkvæmdstjóra vegna þátttöku í prófkjöri flokksins.

Orðið á götunni er að arftakinn verði Sigrún Jónsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Kópavogi. Hún hefur sinnt ýmsum störfum á skrifstofu flokksins að undanförnu en tekur væntanlega við yfirstjórninni í vikunni.




Halla aðstoðar Ögmund

16. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sé búinn að ráða sér pólitískan aðstoðarmann. Það er Halla Gunnarsdóttir sem fyrir stuttu missti vinnuna á Morgunblaðinu þegar staða þingfréttaritara blaðsins var lögð niður. Meðal verkefna Höllu er að aðstoða Ögmund við stórfelldan niðurskurð sem framundan er í heilbrigðiskerfinu.




Ari lét undan kröfum Óskars

15. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að ástæðan fyrir því að Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis, ákvað að draga uppsögn sína til baka sé sú að Ari Edwald hafi ákveðið að verða við kröfum Óskars um grundvallarbreytingar á mannafla fréttastofunnar.

Orðið á götunni er að yfirstjórn Stöðvar 2 og Vísis hafi verið treg til að samþykkja þá eindregnu kröfu Óskars Hrafns að allir fréttamenn sem hafa sett sig gegn breytingum hans á efnistökum fréttastofunnar yrðu látnir fara.

Orðið á götunni er að yfirstjórnin hafi nú látið undan og búast megi við fjöldahreinsunum í kjölfarið. “Allir undir þrítugu þurfa að fara,” mun einn úr hópi fréttamannanna hafi sagt þegar fréttist að Óskar Hrafn væri hættur við að hætta. Sumir hinna eldri fréttamanna, sem hafa verið ósáttir við “gula línu” Óskars Hrafns í fréttaflutningi, hafa starfað á Stöð 2 nánast frá byrjun.

Orðið á götunni er að vorhreinsun Ara Edwald og Óskars Hrafns muni leiða til þess að ný andlit sjáist brátt á skjánum þegar horft er á fréttir Stöðvar 2.




Vill líka Viðskiptablaðið

15. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að bresk-ástralski fjárfestirinn og auðkýfingurinn Steve Cosser, sem gert hefur tilboð í Morgunblaðið, sýni fleiri íslenskum fjölmiðlum áhuga. Þannig mun hann hafa rætt við forráðamenn Viðskiptablaðsins um hugsanlega yfirtöku blaðsins. Sagt er að viðskiptabanki blaðsins telji það fýsilegan kost. 

Steve Cosser hefur dvalið hér um skeið með viðskiptafélaga sínum. Eins og áður hefur komið fram í fréttum er hann með um 320 milljarða króna í farteskinu til að fjárfesta í eignum og rekstri hér á landi. M.a. hefur hann sýnt því áhuga að eignast stjórnarbyggingar í Reykjavík.

Orðrómur hefur verið á kreiki um að Cosser gangi erinda íslenskra manna, en hann þverneitar því. Hins vegar finnst mönnum undarlegt að hann sýni fjölmiðlum eins og Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu áhuga, þar sem fjárfesting í þeim rekstri verður seint talin besta ávöxtun fjármagns sem völ er á.

Enn er ekki búið að upplýsa um það hverjir eru eigendur Viðskiptablaðsins. Róbert Wessman hefur þó staðfest að hann eigi 40% hlut í blaðinu. Talið er líklegast að eignarhaldið sé enn ófrágengið og skýri það áhuga viðskiptabanka blaðsins á aðkomu sterks fjárfestis að útgáfunni.




Með peninga frá Landsbankanum

14. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að þegar Jón Ásgeir Jóhannesson staðgreiddi lúxusíbúð sína á Manhattan fyrir tveimur árum hafi peningarnir komið úr Landsbankanum hér heima þar sem auðkýfingurinn hafði rúma yfirdráttarheimild.

Orðið á götunni er að Jón Ásgeir hafi ætlað sér að halda íbúðinni en Landsbankinn tekið í taumana og krafist þess að hún yrði tafarlaust sett í sölu og andvirðið greitt upp í himinháar skuldir Jóns Ásgeirs í bankanum.




Alfreð í Seðlabankanum

13. febrúar, 2009

Orðið á götunni er að sá gamli refur í pólitíkinni, Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, sé nú kominn á stjá á nýjan leik. Það fær stuðning af frásögn Fréttablaðsins í dag um að hann hafi heimsótt Davíð Oddsson í Seðlabankann í vikunni .

Ekki er að efa að það hefur farið vel á með þeim í löngu spjalli um daginn og veginn.

Dóttir Alfreðs er starfsmaður í bankanum þannig að hann átti erindi við hana. Það var svo kannski hrein tilviljun að Davíð Oddsson rakst á Alfreð á göngum bankans og hafði nógan tíma til að spjalla við sinn gamla samstarfsmann í borgarstjórn.

Nema eitthvað annað sé í gangi?

Kannski fer eitthvað skemmtilegt að gerast í pólitíkinni?





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar