Orðið á götunni er að mikið uppnám hafi orðið hjá skilanefnd Landsbankans í dag þegar fréttastofa Stöðvar 2 hóf að spyrja út í leynileg viðskipti skilanefndarinnar með stofnfjárhluti í BYR sparisjóði.
Ljóst sé að formaður nefndarinnar Lárus Finnbogason sé flæktur í málið, en eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, þá er hann endurskoðandi Reykjavik Invest, sem Landsbankinn tilkynnti BYR í síðustu viku að keypt hefði 2,6% af hlut gamla Landsbankans í sparisjóðnum. Svo virðist sem að Lárus hafi ekki upplýst félaga sína í skilanefndinni fyllilega um það sem hann var að bralla, því ráða má af stuttri og fremur óskýrri yfirlýsingu sem barst fjölmiðlum seint í kvöld, að nefndin hafi komið saman í kvöld og skipað formanni sínum að láta söluna ganga tilbaka.
Arnar Bjarnarson eigandi Reykjavik Invest, fjárfestingafélags með lítil umsvif á síðustu árum, keypti umrædd bréf en neitaði að gefa neitt upp um verð eða fjármögnun þeirra í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag. Orðið á götunni er að Arnar sé langt frá því að vera borgunarmaður fyrir þeim ríflega hálfa milljarði króna sem stofnfjárbréfin eru talin kosta. Þetta séu því annað hvort sýndarviðskipti (eins og þau sem áttu sér svo reglulega stað fyrir bankahrunið), eða þá að einhverjir huldumenn (Landsbankinn) hafi ætlað að lána honum fyrir kaupunum með litlum eða engum veðum.
Nafn Arnars hljómar e.t.v. kunnuglega í eyrum sumra. Hann er fyrrverandi prófessor á Bifröst, náinn trúnaðarmaður Guðna Ágústssonar og mikill áhrifamaður í Framsóknarflokknum. Arnar á meðal annars sæti í málefnanefnd miðstjórnar Framsóknarflokksins. Einnig starfaði hann um skamma hríð hjá MP Banka, en var sagt upp störfum þar.
Orðið á götunni er að einhverjir ákveðnir einstaklingar hafi séð tækifæri í því moldviðri sem risið hefur í kringum BYR og hugsað sér gott til glóðarinnar. Þeir hafi í samstarfi við skilanefndina fengið Arnar til að leppa bréf úr eigu gamla Landsbankans, stillt honum upp í framboð til stjórnar ásamt m.a. Herði Arnarssyni fyrrv. forstjóra Marels og svo hóað í Svein Margeirsson, dugmikinn hindrunarhlaupara og baráttumann fyrir bættum vinnubrögðum í BYR, til að ljá framboðinu aukinn trúverðugleika. Spyrja má hvaða augum þessi ötulli baráttumaður„fyrir bættu siðferði sparisjóða“ líti meðframbjóðanda sinn Arnar Bjarnarson nú þegar liggur fyrir hvernig stofnfjárhlutur Arnars kom til?
Þeir sem lögðu á ráðin um söluna til Arnars og valdatökuna í BYR, virðast hins vegar ekki hafa litið til þess að jafnræði og gagnsæi þarf að ríkja þegar að eigur ríkisins eru seldar. Og eins og fram hefur komið þá var 2,6% hluturinn í BYR hvergi auglýstur til sölu. Skattgreiðendur geta því ekki verið vissir um að þeir hafi átt að fá besta verð fyrir hlutinn, né um að raunveruleg viðskipti hafi verið að ræða en ekki sýndartilfærsla til að þjóna plotti fárra manna.
Þeirri kenningu hefur jafnframt verið kastað fram að stjórnendur Nýja Landsbankans kunni að tengjast málinu. Þeir hafi séð tækifæri í því að til yrði nýr sterkur eigendahópur í BYR-sparisjóði, með mögulega framtíðar sameiningarmöguleika á fjármálamarkaði í huga.
Orðið á götunni er að Lárusi Finnbogasyni sé vart sætt áfram sem formanni skilanefndar Landsbankans, eftir atburði dagsins. Slegið hafi verið harkalega á puttana á honum með ákvörðun skilanefndarinnar í kvöld. Trúnaðarbrestur hljóti að vera kominn upp á milli skilanefndarmanna og formannsins. Einnig sé Fjármálaeftirlitið varla kátt með að hafa fengið ákúrur vegna málsins frá Jóhönnu Sigurðardóttur, í fyrsta langa viðtalinu sem hún gefur eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum. Málinu sé því hvergi nærri lokið. Skilanefnd með gríðarleg áhrif og eignir á sinni könnu, geti ekki setið þegjandi undir ásökunum um spillingu í sínum röðum. Upplýsa þurfi hvernig salan til Reykjavik Invest hafi komið til og hvort fleiri dæmi séu um leynilega eignasölu skilanefndarinna