Bankastjórar deildu um Icesave
25. júní, 2009
Eitt helsta áherslumál Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið er að grafast fyrir um bakgrunn og þróun Icesave-málsins með það fyrir augum að skýra ábyrgð einstakra manna í því. Og skal engan undra.
Í þeim efnum býr nefndin meðal annars nú þegar yfir vitnisburði um mikinn átakafund veturinn 2007-8 milli bankastjóra Landsbankans, þeirra Halldórs J. Kristjánssonar og Sigurjóns Þ. Árnasonar, þar sem þeir deildu m.a. um Icesave.
Orðið á götunni er að nefndin hafi haft greinargóðar upplýsingar um fundinn þegar hún yfirheyrði Sigurjón á dögunum og hafi spurt hann í þaula um það sem bankastjórunum hafi farið þar í milli.
Meðal þess sem rætt er um í þessu sambandi er að í ábyrgðarmenginu: bankaráð, bankastjórar, eftirlitsaðilar komi nú tíðum upp sú skýring að þó þessir aðilar hafi haft vaxandi áhyggjur af Sigurjóni og minnkandi traust á honum þá hafi hann haldið stöðu sinni vegna tugmilljarðanna sem hann skilaði í hagnaði.
Orðið á götunni er að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vilji fá annað hvort Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, eða Þorstein Pálsson, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins, til að stýra samninganefnd Íslands ef til aðildarviðræðna við Evrópusambandið kemur síðar í sumar. Þeir eru báðir yfirlýstir stuðningsmenn aðildar.
Orðið á götunni er að um 70 sjálfstæðismenn sem hlynntir eru inngöngu Íslands í Evrópusambandið hafi komið saman á lokuðum fundi í Valhöll fyrir nokkrum dögum. Meðal þeirra sem áttu frumkvæði að fundinum voru Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri Talnakönnunar og Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins.
Orðið á götunni er að það fari ekki á milli mála við hvað sé átt þegar Anna Margrét Björnsson, blaðakona á Fréttablaðinu, skrifar á Facebook-síðu sína sama dag og Þorsteinn Pálsson ritstjóri blaðsins tilkynnti samstarfsfólki sínu að hann væri að hætta: lélegt fólk burt ...
Orðið á götunni er að Jón Ásgeir Jóhannesson aðaleigandi 365 miðla sé hress með Jón Kaldal sem hæstráðanda á Fréttablaðinu eftir að
Orðið á götunni er að ráðherrarnir í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi gert stórt axarskaft með því að koma sér undan því að hitta trúar- og friðarleiðtogann Dalai Lama í Íslandsheimsókn hans.