Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is
25. júlí, 2009

Skólum lokað vegna flensunnar?

Orðið á götunni er að ekki sé útilokað að öllum skólum hér á landi, leikskólum, grunnskólum, framhaldskólum og háskólum, verði lokað í nokkrar vikur í haust til að hindra útbreiðslu svínaflensunnar sem þegar hefur skotið hér rótum. Sama gæti gilt um fleiri fjölmenna samkomustaði.

Orðið á götunni er að strax í vor hafi verið tilbúin áætlun um sex vikna lokun allra skóla í haust. Hafi fræðsluyfirvöld víða kynnt kennurum þessar hugmyndir.

Orðið á götunni er að ákvörðun um lokun skóla verði tekin í samræmi við það hvernig útbreiðsla svínaflensunnar þróast hérlendis. Hugsanlegt er að ekki þurfi að koma til neinnar lokunar, en hitt mun ekki útilokað að skólar hefjist ekki á tilsettum tíma.

Hér á landi eru þessi mál nær ekkert rædd opinberlega. Í nágrannalöndunum fara fram opinskáar umræður um málið. Þar hafa komið fram miklar áhyggjur vegna þessara áforma sem ýmsir óttast að hafi þungbær áhrif á atvinnulífið.

Í fréttum í dag segir að tjaldbúðir nær tvö þúsund norskra ungmenna hafi verið leystar upp um helgina eftir að einn tjaldbúa reyndist sýktur af svínaflensunni. Spurningar vakna um það hvort þessar fréttir hafi einhver áhrif á íslenskar útihátíðir um verslunarmannahelgina.

Senda á Facebook
Til baka

10 ummæli

Rita ummæli

VG
25. júlí, 2009 kl.11:04

fáránlegt að almenningi sé ekki kynntar almennar varúðarráðstafanirf gegn flenslunni í sjónvarpi og á helstu vefmiðlum. Eru ekki almannahagsmunir í húfi að fólk sé betur upplýst um flensuna og hvað fólk eigi að gera til að hindar að smita aðra ef það er grunar að það sé veikt ?

Maður hefur séð slíkt fræðsluefni í bresku sjónvarpi og vefmiðlum og einnig í norrænum miðlum. En á Íslandi virðist duga að heyra í Haraldi á nokkra daga fresti í útvarpi.... hvaða bull er þetta...

esess
25. júlí, 2009 kl.14:41

Sammála VG, hvað er eiginlega að embættismönnum á Íslandi!?!
Verður núna ‘Heilbrigðishrunið’ í haust, á núna enn einu sinni að nota aðferðafræðina ‘að stinga hausnum í sandinn’ og hvað er þetta með Harald...ekki traustvekjandi og gjörsamlega óþolandi að hlusta á hann núna síðast td. í sjónvarpsviðtali vælandi um að kvótinn í greiningu á sýnatökum sé komin að þeim mörkum að ekki verði unnt greina meiri fjölda!?! vegna?!
Aðgerðarleysi,úrræðaleysi virðist hrjá Harald á háu stigi...Annars, svo er að sjá og finna þegar holskeflan skellur á í haust,þá verður málið útskýrt eins og efnahagshrunið...Þetta er heimsfaraldur!
Ó! okkur aumu fórnarlömb þessa lands,algjölega berskjölduð gegn þessum hræðilega heimi...þarna útlendis!

Ganstah
25. júlí, 2009 kl.19:34

“Spurningar vakna um það hvort þessar fréttir hafi einhver áhrif á íslenskar útihátíðir um verslunarmannahelgina.”

Svarið er: Nei

GG
25. júlí, 2009 kl.23:07

Þekki hjón sem voru að koma frá útlöndum með fimm mánaða gamalt barn. Þau fengu öll einhverja pest eftir að þau komu með svipuðum einkennum og svínaflensan. Þau fóru til læknis en það var ekki tekið sýni úr þeim. Þau höfðu áhyggjur og fóru aftur og þurftu að biðja um að það væri amk. tekið sýni úr barninu. Þau voru mjög ósátt með þetta.

Mér finnst læknar hérna kærulausir og umræðan er engin af hálfu hins opinbera. Af hverju er ekki rætt betur um þessa flensu sem hefur breyst í heimsfaraldur og útskýrt fyrir fólki hvað gert verður þegar fleiri veikjast og svo fl.?

Hverjir fá t.d. sprautu? Af hverju er ekki pantað bóluefni fyrir alla þjóðina?

Rósa Lúx
26. júlí, 2009 kl.00:05

Dæmigert fyrir þá djúpu virðingu sem íslensk stjórnmála- og embættismannastétt ber fyrir almenningi.

Minnir á þá ítarlegu upplýsingagjöf sem sömu aðilum hefur þótt nægja um viðbrögð við kjarnorkuvá o.fl. gegnum tíðina.

Mottóið er: Almenningur of vitlaus til að deila þessum upplýsingum með okkur.

Árni Grétar
26. júlí, 2009 kl.09:44

GG: Það kostar tugi þúsunda að taka og greina hvert svona sýni. Þess vegna er það ekkert nema peningaeyðsla að taka sýnir úr fólki nema veikindi þess séu alvarleg.

Jafnframt er líka peningaeyðsla að panta bóluefni fyrir alla þjóðina vegna þess að eins og með venjulegar flensur er óþarfi að bólusetja aðra en þá sem eru veikir fyrir, aldraða og börn. Auk þess eru líkur á því að nokkur hluti þjóðarinnar verði nú þegar búinn að fá svínaflensu þegar bóluefnið loksins kemur. Það er vitaskuld tilgangslaust að panta bóluefni handa því.

Svínaflensan er í vægari kantinum miðað við venjulegar vetrarflensur og umræðan ætti að miðast að því. Ekki svona ofsahræðsla sem á sér enga stoð í raunveruleikanum.

Guðbjartur
26. júlí, 2009 kl.14:23

Þetta er nú meiri hræðsluáróðurinn, sjáið hvað þessi bandaríski læknir segir: “Rólegan Æsing” (fleiri deyja af venjulegri flensu!)

http://blogs.abcnews.com/thenote/2009/04/swine-flu-skept.html

Rofabarðið
26. júlí, 2009 kl.18:14

Það er fáránlegt kæruleysi af mönnum að tala um hysteri þegar fólk hefur áhyggjur af þessari H1N1 influensu. Flestir þeir vísindamenn, sem þekkja best faraldsfræðilega þætti slíkra pesta hafa af því þungar áhyggjur, að núna meðan vetur er á suðurhveli jarðar, og dreifing pestarinnar þar af leiðandi hraðari, taki hún ámóta stökkbreytingum, sem sambærileg pest gerði 1918. Svo komi hún því tvíefld hingað á norðurhvelið með haustinu þegar skólar byrja og nánd fólks eykst að loknum sumarleyfum.

Árni Grétar
26. júlí, 2009 kl.18:42

Rofabarð: Hvernig réttlætir það áhyggjur manna og gagnrýni á vinnubrögð heilbrigðisyfirvalda á þessum tímapunkti að eitthvað svona geti gerst í framtíðinni? Hvað ættu menn að gera núna sem getur komið í veg fyrir þetta? Staðreyndin er að þessi hætta sem þú talar um er alltaf yfirvofandi og ekkert sérstakt við svineflensustofninn í þessum efnum.

Það er líka rangt að nokkur vísindamaður hafi “þungar áhyggjur” af því að flensan stökkbreytist og komi tvíefld til baka í vetur. Þeir tala bara um að að það geti gerst. Stökkbreytingar sem leiða að heimsfaraldri eru alltaf fræðilega mögulegar en ólíklegar. Við skulum í þessu sambandi muna eftir fuglaflensunni.

Agnes
27. júlí, 2009 kl.08:14

Löngu tímabært að ræða forvarnir gegn flensunni hvernig bregðast eigi við á vinnustöðum og í skólum. Það er betra að vera undirbúin ef og þegar bregðast þarf við.

Tel bráðnauðsynlegt þegar skólar opna í haust að fræðsla fari fram við starfsmenn og nemendur skóla.
Einnig þarf að brýna fyrir fólki að vera heima ef það finnur fyrir slappleika eða er orðið veikt og að fólk fari ekki of snemma af stað til vinnu eða skóla.

Auglýsa þarf daglega helstu ráð eins og eru t.d. inn á www.innfluensa.is

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar