Orðið á götunni er að forystumenn Samfylkingarinnar hafi ákveðið að ráða ‘rekstrarmann’ frekar en snjallan áróðursmann í starf framkvæmdastjóra flokksins. Það þykir henta betur að hafa slíkan mann til að reka flokksstarfið frá degi til dags og láta kjörna fulltrúa um áróðursstarfið.
Skrifstofa Samfylkingarinnar hefur verið lokuð um skeið, en þangað hafa þó verið boðaðir umsækjendur um starf framkvæmdastjóra flokksins sem auglýst var laust til umsóknar fyrir nokkrum vikum. Algjör leynd hvílir yfir því hverjir umsækjendur eru. Eina sem fram hefur komið er að Runólfur Ágústsson fyrrum rektor er ekki meðal umsækjenda. Hann er þó talinn hafa verið óskakandidat Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í starfið, en þau eru gamlir samstarfsmenn úr Þjóðvaka. Ekki hefur verið upplýst um ástæður þess að Runólfur, sem áhuga hafði fyrir starfinu, er ekki í hópi umsækjenda.
Orðið á götunni er að meðal umsækjenda sé Sigrún Jónsdóttir, en hún var ráðin framkvæmdastjóri til bráðabirgða þegar Skúli Helgason hætti og fór í framboð.
Niðurstöðu um val framkvæmdastjóra er að vænta fljótlega, en samkvæmt auglýsingunni átti viðkomandi að hefja störf 1. ágúst.
Til baka
Þín skoðun
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.