Hún lætur lítið yfir sér smágreinin sem ‘hjón í Fjarðabyggð’ birta í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni ‘Rökstudd gagnrýni kallar á rökstudd svör’, en orðið á götunni er að meira fari fyrir þunga greinarinnar á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Höfundarnir sem kynna sig svo hógværlega eru Helga Jónsdóttir bæjarstjóri í Fjarðabyggð og eiginmaður hennar, Helgi H. Jónsson fyrrverandi fréttamaður.
Helga er áhrifamaður í Samfylkingunni og skoðanir hennar hafa talsvert vægi meðal Samfylkingarfólks.
Orðið á götunni er að greinin sé ein vísbendingin um að Icesave-samningarnir eigi erfitt uppdráttar innan stjórnarflokkanna.
Greinarstúfur Helgu og Helga er svohljóðandi:
Forsendur:
Ísland ábyrgist innstæðueiganda í íslenskum banka að hann fái innstæðu sína greidda að fullu allt að 20.887 evrum.
Þrotabú íslensks banka greiðir innstæðueiganda 20.887 evrur.
Spurning:
Ber Ísland ábyrgð á tjóni innstæðueigandans vegna innstæðu umfram 20.887 evrur?
Svar okkar:
Nei.
Sé þessi framsetning rétt hefur íslenska samninganefndin um Icesave-málið gengist undir ábyrgð, umfram skyldu, gagnvart breskum og hollenskum stjórnvöldum sem nemur gríðarlegum fjárhæðum. Um það hefur verið samið að íslenski tryggingasjóðurinn sitji uppi með kostnað, sem hann ber ekki ábyrgð á. Lögmennirnir Hörður Felix Harðarson hrl. og Ragnar H. Hall hrl sýndu fram á þetta með dæmum í grein sem birtist í Morgunblaðinu 22. júlí sl. og Ragnar skýrði málið enn frekar í grein í Morgunblaðinu 27. júlí. Eiríkur Tómasson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, hefur haldið því sama fram í Morgunblaðinu.
Þegar fram koma vel rökstuddar ábendingar um að íslensk stjórnvöld séu að auka fjárhagsbyrðar þjóðarinnar umfram nauðsyn þurfa stjórnvöld að skýra mál sitt. Þetta mál er svo alvarlegt að skýringarnar þurfa að vera efnislegar, rökstuddar og án útúrsnúninga. Svörin mega ekki felast í þeirri gamalkunnu aðferð að varpa rýrð á þá menn sem sett hafa fram ábendingarnar.
Höfundar eru hjón í Fjarðabyggð.
Til baka
Þín skoðun
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.