Hrannar leiðréttir Kanastjóra
5. ágúst, 2009Orðið á götunni er að verkefnalisti ríkisstjórnarinnar hljóti að vera að styttast umtalsvert fyrst Hrannar Björn Arnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra gefi sér tíma til að skrifa Facebook athugasemdir á miðnætti um létt grín Einars Bárðarsonar.

Orðið á götunni er líka að vegur Einars fari vaxandi í aðdraganda þess að Kaninn hans fari í loftið og því kannski talið sjálfsagt meðal ráðamanna þjóðarinnar og annarra sem mikils mega sín að hafa gætur á honum. Innan af útvarpssviði 365 heyrist til dæmis að ósvarað símtal frá Einari á gemsa starfsmanna geti nú þýtt helmingshækkun í launum.