fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Eyjan

Sjö óbrigðul ráð til þess að afstýra kreppu á Íslandi

Egill Helgason
Sunnudaginn 1. febrúar 2009 19:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Magnússon læknir var gestur minn í Silfri Egils í dag. Hann hefur beðið mig að birta þessa grein, sem er nokkuð samhljóða efni viðtalsins.

— — —

Skuldir ríkisins eru nær 2.100 milljarðar.  Einhverjar eignir eru bundnar í bönkunum en lágt verð fæst fyrir þær um þessar mundir. Mat IMF virðist því vera nokkuð nærri lagi, að heildarlántökuþörf ríkisins vegna lántökuglæfra og bókhaldsfegrunaraðgerða bankanna (einnig kallað bankahrun) sé um 1.600 milljarðir. Svíar lenntu í djúpri bankakrepu 1991 sem þeir eru ekki ennþá búnir að vinna sig almennilega útúr. Heildarkostnaður skattgreiðenda þar var 1.800 milljarðar íslenskra króna (núvirði). Svíar eru uþb 30 sinnum fleiri en íslendingar, því virðist bankakreppa okkar vera 25 sinnum verri en sænska bankakreppan. Það er vonlaust að íslenskur almenningur sem nú þegar er að kikkna undan sínum eigin körfulánum, verðtryggðum ofurvaxtarlánum og atvinnuleysi geti nokkurn tíman borgað þessa skuld fyrir fjárglæframenn sína. En það er engin ástæða til þess að örvænta, það er leið út úr vandanum. Þeir einstaklingar sem komu okkur í þennan vanda eiga nægar eignir til þess að greiða skuldir sínar sjálfir. En þar sem þeir hafa ekki tekið til sín orð ráðamanna um að allir þurfa nú að hjálpast að og sýna samstöðu þá er vandinn bara hvernig hægt er að ná aftur af þeim eigum sem þeir hafa skotið undan. Hér skal bent á nokkrar leiðir:

1.

Þó svo að íslensk fjármálalöggjöf gefi fjárglæframönnum afar frjálsar hendur en neytandanum lítil réttindi þá eru samt lögbrot undanfarinna ára svo stórtæk að hægt er að dæma eigendur bankanna eftir hinum hripleku íslensku lögum. Eigendur bankanna stofnuðu félög sem þeir blésu upp gengið á og létu svo lífeyrissjóði í vörslu bankanna, og viðskiptavini í fjármálaráðgjöf, kaupa þessi bréf á yfirverði. Eigendur bankanna veðjuðu öllu sínu fé á að gengi krónunnar myndi falla, en fengu svo lífeyrisjóðina, (sem sumir voru í ráðgjöf hjá bönkunum) til þess að veðja á móti þeim, þ.e. ráðlögðu skjólstæðingum sínum að gera þveröfugt við það sem þeir sjálfir gerðu. Þetta, og margt fleira er ólöglegt og því hægt að endurheimta féð með lögsóknum.

2.

Bæta löggjöfina þannig að léttara verði fyrir einstaklinga að sækja rétt sinn gagnvart fyrri eigendum bankanna. Á Íslandi geta t.d. einstaklingar ekki höfðað sameiginlegt mál gegn bönkunum t.d. fyrir vísvitandi villandi ráðgjöf, heldur þarf hver og einn að fara í mál fyrir sig einan. Þannig er því ekki farið í siðmentuðum löndum í kringum okkur. Ef fyrirtæki brýtur gegn viðskiptavinum sínum verða þeir sem fyrir brotinu verða sjálfkrafa aðilar að sameiginlegri málshöfðun. Bretland veitir neytendum og smáum hluthöfum góða vernd gegn bellibrögðum þeim sem leyfð eru á Íslandi, hægt er að taka upp bresku löggjöfina hér.

3.

Hinum nýju auðmönnum Íslands tókst að koma skuldum sínum yfir á almenning gegnum ríkisvaldið, og með ríkisvaldinu má aftur ná af þeim fénu. Þjóðin er í algerlega nýrri aðstöðu, hún á að greiða skuldir manna sem ferðast um heiminn á einkaþotum og velta sér upp úr auðæfum. Ekki er óeðlilegt að nýrri löggjöf verði komið á sem bregðist við þessum nýju aðstæðum. Nú er neyðarástand, þá eru sett neyðarlög. Íslensk lög eru ekki greypt í stein af Guði, heldur sett af fulltrúum almennings á Alþingi. Lagasetning er að festa í orð það sem endurspeglar réttlætiskennd þjóðar. Hin nýju lög gætu t.d. hljóðað eitthvað á þessa leið: “Ef ríkissjóður (almenningur) þarf að taka á sig skuldbindingar einkafyrirtækja sem nema meira en x% af VLF þá útleysir það ákveðin réttindi þeirra sem þurfa að greiða það. Fyrningafrestur lengist, banka- og bókhaldsleynd afléttist, og allar færslur sem ljóst mátti vera að hefði veikt stöðu hins gjaldþrota fyrirtækis og aukið skuldir almennings verði látnar ganga tilbaka eftir því sem við verður komið o.s.fr.”.

4.

Útrásarímyndunninni var m.a. viðhaldið með þjóðernisrembingi. Nú er búið að æsa íslendinga upp á móti Bretum. En bankamennirnir okkar (studdir af FME, seðlabanka og ráðherrum) fóru nákvæmlega eins með breskan almenning og íslenskan. Bretar eru á alveg sama báti og íslenskur almenningur. Bretar horfa nú agndofa uppá að íslensk stjórnvöld ætla að halda hlífiskildi yfir fjárglæframönnunum og ekki gefa þeim aðgang að þeim. ISAVE og EDGE deilurnar á að semja um á eftirfarandi hátt: Bretum (og öðrum þjóðum) er veittur ótakmarkaður aðgangur að gögnum íslensku bankanna og veitt öll sú aðstoð sem hægt er til þess að lögsækja þá fyrir óeðlilegra viðskiptahætti. Það sem að því loknu stendur eftir af skuldinni getur ríkissjóður ábyrgst. Þetta er nauðsynlegt þar sem íslendingar geta ekki gert þetta sjálfir þar sem nýlega er búið að fækka í starfsliði efnahagsbrotadeildar og þar sem enginn pólitískur vilji er til þessa að fara í þessi mál.

5.

Tölur frá seðlabankanum sýna að bankaútrásin var 2000 milljarðar í mínus fyrir hrunið, en bankarnir (og ráðherrarnir) sögðu að eiginfjárhagsstaðan væri plús 1000 miljarðir. Einn fremsti upphafsmaður bankaútrásarinnar útskýrði að mismunurinn, 3000 miljarðar, væri viðskiptavild og aðrar óefnislegar eigur, “einnig kallað loft”. Þetta var viðskiptavild sem smurt var ofaná þá viðskiptavild sem þegar var inní fyrirtækjunum þegar þau voru keypt. Svona bókfærsla ber keim af ENRON hneykslinu. Endurskoðendafyrirtæki ENRON, Anderson Consulting, missti allt traust og fór á hausinn þegar kom á daginn hvers konar bókhald það hafði ábyrgst. Hin erlendu móðurfyrirtæki íslensku bankaendurskoðandanna gætu orðið fyrir alvarlegum álitshnekki ef það kæmist í hámæli að þeirra umboðsskrifstofur hefðu skrifað uppá bókhaldsloftfimleika íslensku bankanna og útrásarvíkinganna. Íslendingar ættu að benda móðurfyrirtækjunum á þetta og rétta fram sáttarhönd ef þau fara rækilega í gegnum endurskoðunarvinnu íslensku útibúanna. Þannig myndi fást góð, og ókeypis viðbótarrannsókn sem kæmi sér vel í komandi réttarhöldum þar sem féð verður aftur sótt í hendur þeirra sem halda því í dag. Ef hinar erlendu bókhaldsskrifstofur ganga ekki að þessu þá er hætt við að íslendingar viðri óánægju sína á áberandi erlendum vettvangi.

6.

Til er tvenns konar fjármálastarfsemi í heiminum í dag. Annars vegar þar sem verið er að beina fjármunum til verðmætasköpunar, og hins vegar þar sem hlutabréfum er breytt í spilapeninga og stunduð er veðmálastarfsemi með framvirkum samningum, gjaldeyrisstöðutökum o.s.fr. Hið síðarnefnda er miklu umfangsmeiri í dag, og skilar aldrei neinni framleiðni og er almenningi aldrei til góðs. Þeir sem búa yfir meiri þekkingu, t.d. eigendur bankanna sem vita hvernig raunveruleg staða er, geta platað þá sem minna vita, t.d. stjórnendur lífeyrissjóða og útvegsfyrirtækja. Þeir menn sem þessa tegund viðskipta stunda eru nefndir “financial preditors” eða fjármunarándýr, það eru þeir sem hafa rakað til sín fjármagninu á Íslandi sem ríkissjóður er nú að reyna að útvega annars staðar frá á kostnað skattborgaranna. Fé þessarra manna má ná aftur með því t.d. að innleiða 90% skatt á arð af framvirkum samningum, og 50% árlegan eignarskatt á eignum tilkomnum af framvirkum samningum o.s.fr.

7.

Það var algerlega skýrt við stofnun sparisjóðanna að þeir ættu ekki að vera gróðafyrirtæki heldur byggjast á hugsjónum, almenningi til hagsbóta. Talið er að heildareignir sparisjóðanna sem auðmenn hafa nýlega stolið af almenningi skipti tugum jafnvel hundruðum milljarða. Þessu fé er sára einfallt að ná tilbaka með lagasetningu ef kosnir eru menn á þing sem hafa vilja til þess að ganga í það verk.
Kæri lesandi, Íslendingar standa frammi fyrir kreppu sem virðist vera margfallt dýpri en bankakreppurnar sem riðu yfir nágrannalönd vor fyrir 17 árum.  Í finnsku efnahagslægðinni djúpu urðu skuldir ríkissjóðs 60% af VLF, ríkissjóður Íslands skuldar núna 200% af VLF. Íslenskur almenningur er þegar búinn að tapa mestu af lífeyri sínum, búist er við atvinnuleysi og landflótta, fólkið er að sligast undan svimandi háum verðtryggðum vöxtum og myntkörfulánum.  Þetta fólk getur ekki bætt við sig að borga af  þeim 2100 miljörðum sem ríkissjóður skuldar nú (hann var skuldlaus fyrir ári síðan). Lausnin við þessum vanda getur því aðeins verið sú að beita öllum tiltækum ráðum til þess að ná fjármununum af þeim vellauðugu mönnum sem ollu kreppunni. Við fall bankanna kom í ljós að þeir höfðu veðjað uþb. 700 miljarði á að gengi íslensku krónunnar myndi falla (sem er sambærilegt við að læknir veðji algeigu sinni á að sjúklingurinn sem hann er að stunda muni verða alvarlega veikur eða drepast).  Ágóði þessa gengisveðmáls gæti orðið uþb. eitt þúsund miljarðar. Það er þetta fé sem þarf að ná aftur; ásamt því fé sem hefur streymt gegnum hina gjaldþrota banka til dótturfyrirtækja hinna fyrrverandi eigenda þeirra.

Andrés Magnússon læknir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Framboð Viktors gilt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað

Snorri Jakobsson: Fjárfestar hafa flutt sig af hlutabréfamarkaði yfir á fasteigna- og lóðamarkað
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“

Baldur um viðtalið umdeilda: „Ef ég hefði sagt eitthvað annað, þá hefði ég sagt ósatt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar