Þessir menn áttu Bræðurna Omsson, þá miklu raftækjaverslun, árin 2004, 2005, 2006 og 2007, árin sem Íslendingar fríkuðu út í neyslu.
Árin þegar þjóðin keypti hina frægu flatskjái sem settu okkur á hausinn. (Í stofunni hjá mér er flatskjár frá Ormsson.)
Samt tókst þeim að safna skuldum á skuldir ofan – og þær þurfti að afskrifa.
Hvert fóru peningarnir? spyr maður um þetta fyrirtæki – og mörg önnur íslensk fyrirtæki.
En það var ansi mikið klúður hjá Steingrími J. að skipa Gunnar Örn sem stjórnarformann Nýja Kaupþings.
Stuttu eftir að þurfti að afskrifa 1.ooo.ooo.ooo vegna gjaldþrota fyrirtækis hans.
Næst verður Steingrímur að vanda valið betur.