Eva Joly var gestur hjá mér í Silfrinu í dag.
Í endursýningu þáttarins í kvöld verður viðtalið sýnt með íslenskum texta og á morgun verður viðtalið tiltækt á vefnum með texta.
Eva Joly dvelur hér í nokkra daga. Hún mun hitta ráðherra úr ríkisstjórninni, sérstakan saksóknara og ríkissaksóknara og einnig er ráðgert að hún fundi með rannsóknarnefnd þingsins.
Loks talar hún á fundi í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu á þriðjudag.
Hér má sjá ágæta endursögn á viðtalinu í dag.