Vefritið Herðubreið er eitt helsta málgagn samfylkingarfólks um þessar mundir. Það var vakið upp gagngert vegna kosninganna í vor. Tímarit með sama nafni hefur lagt upp laupana.
Ýmislegt merkilegt hefur mátt lesa í vefritinu upp á síðkastið:
Alfa þess og omega er að allt – og þá meina ég allt –sem aflaga hefur farið í íslenska hagkerfinu sé Davíð Oddssyni að kenna, það hefur varið Sigurð Einarsson fyrir árásum óprúttinna manna (m.a. undirritaðs), telur að auðmenn sæti ómaklegum árásum, álítur það fráeita hugmynd að aflétta bankaleynd, birtir grein um að það sé ekkert athugavert við reikningsskil íslenskra fyrirtækja (viðskiptavildina, loftbóluhagkerfið) og nú síðast ræðst það harkalega á Vilhjálm Bjarnason.
Einn fárra manna sem stóð í lappirnar gagnvart ofurvaldi auðrhringa og eignarhaldsfélaga.
Sannarlega athyglisvert framlag úr herbúðum annars stjórnarflokksins.