fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Bankarnir og auglýsingar

Egill Helgason
Miðvikudaginn 6. maí 2009 13:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðskiptavinur skrifar.

— — —

Eru yfirvöld að gera grín að almenningi og nota til þess íslensku bankana?

1. Íslenskir bankar tapa hrikalegum fjárhæðum af lífeyrissparnaði og almennum sparnaði almennings.
2. Ríkið yfirtekur alla helstu banka landsins og skiptir svo bara  um kennitölu á bönkunum.
3. Sparnaður landsmanna er að stórum hluta horfinn úr „nýju“ bönkunum..
4. Vegna spákaupmennsku og refskákar bankanna sjálfra og tengdra fyrirtækja eru skuldir almennings hærri en áður.
5. Bankarnir ganga jafn hart ef ekki harðar fram í innheimtu og óbilgirni gagnvart almenningi.

Þetta er staðan á vormánuðum 2009. Og hvað gera þá rikisbankarnir þrír – þessir sem allir vita að verða sameinaðir að stórum hluta?

Jú, RÍKISbankarnir hefja heljarinnar auglýsingastríð, moka milljónum í ímyndaherferðir og gylliboð, rétt eins og október 2008 hafi bara verið slæmur draumur.

Ríkisbankar eru sem sagt að nota OKKAR peninga, í einhverri hallærisbaráttu um hver getur pissað lengst í auglýsingum.

Og hvað er verið að auglýsa?

Landsbankinn fer inn á auglýsingastofu og fær ráðgjöf

Bankinn hefur skaðast svo mikið – enginn treystir yfirmönnum – nú skulum við láta almenna starfsmenn vera andlit bankans.

Tökum nú myndir fyrir nokkrar millur, semjum lag fyrir einhverja hundraðþúsundkalla og keyrum svo birtingar eins og 2007 hafi aldrei liðið.

Apríl og maí – Allir landsmenn fá að vita að Aðalbjörg gengur á fjöll og að Marta fer á skíði. Starfsmennirnir eru sem sagt rosalega venjulegt fólk þótt þau vinni í banka, og við fyrirgefum bankanum alveg að hafa tapað öllum milljónunum okkar, vegna þess að Sólveig tekur á móti mér í Austurstræti og Jón Fannar var í vörninni hjá Grindavík.

Takk Landsbanki! Nú elska ég þig aftur.

Íslandsbanki/Glitnir/Íslandsbanki fer og fær ráðgjöf

Glitnisnafnið er svo jaskað – tökum aftur upp gamla nafnið. Til að verjast gagnrýni á kostnað við að skipta um bréfhaus, þá skulum við prenta límmiða sem eru dýrari en bréfsefnið og láta starfsmenn sitja og líma á pappír. Þá finnst öllum við vera svo ráðdeildarsöm. Fjölmiðlamenn eru hvort eð  er svo fattlausir að .þeir spyrja aldrei svona basic spurninga.

Apríl: Fjölmiðlar segja frá því sem sérstakri ráðdeild milljónabirnunnar að vel launaðir starfsmenn sitji og föndri – til að draga athyglina frá peningaustrinum.

Takk Birna, nú fyrirgef ég þér milljónirnar sem þú hafðir af mér og öllum hinum. Ég elska Glitni. Nei, ég meina Íslandsbanka.

Kaupþing fer og fær ráðgjöf

„Hey, ráðum áróðursmeistara sem við köllum „umboðsmann viðskiptavina“. Allir halda að hún sé að passa eitthvað upp á viðskiptavinina en svo skrifar hún bara greinar í blöðin sem eru svona lofrullur um bankanna og starfsmenn hans! “ Þeir (og hinir bankarnir líka) birta auglýsingar þar sem bankinn SJÁLFUR auglýsir og ræður umboðsmanninn og stjórn bankans fer með boðvald yfir starfsmanninum.

18. apríl 2009. Umboðsmaður viðskiptavina Kaupþings skrifar í Mbl. „Stjórnendur bankanna taka á þessu verkefni af fullri alvöru og ábyrgð. Starfsmenn bankanna leggja nótt við dag til að leita þeirra lausna sem best gagnast fyirtækjunum sjálfum, bönkunum og samfélaginu í heild.“ Greinilegt að viðskiptavinir eiga hauk í horni þar sem umboðsmaðurinn er og hún er sko ekkert í liði með bankanum.

Takk Kaupþing – nú er ég alveg búinn að gleyma því að Kaupþing drap krónuna með spákaupmennsku og sturtaði íslensku efnahagslífi niður um klósettið í leiðinni með ævintyralegum útlánum til vildarvina.

Ég spyr

Hvað kostar þetta RUGL – og hvaða meðvitundarlausu starfsmenn ríkisins leyfa kennitöluflakkandi bankastofnunum, sem verða brátt lagðar niður í núverandi mynd, að stunda svona fjáraustur úr OKKAR fjárhirslum? Ég krefst þess að ALLAR auglýsingar bankanna verði stöðvaðar þegar í stað og einungis auglýst ef vantar starfsmenn eða ef um lögbundnar meldingar er að ræða. Þessi ímyndar- og þjónustufroða á að hverfa úr öllum miðlum STRAX! Allt annað er móðgun við skuldum hlaðinn almenning.

Viðskiptavinur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus