Hér á landi hafa gamlir kommar haft sig mjög í frammi í baráttunni gegn ESB. Raunar er mjög merkilegt að sjá hvernig þeir ná saman við nýja félaga utarlega af hægrivængnum.
Og nú er farið að flytja inn gamla komma frá Noregi.
Dag Seierstad hefur verið áhrifamaður í pólitíkinni yst í vinstrinu í Noregi álíka lengi og Hjörleifur Guttormsson og Ragnar Arnalds á Íslandi. Raunar hefur hann ekki náð svo langt að verða ráðherra eins og þeir, en hann er sprottin upp úr svipuðum jarðvegi – dvaldi til dæmis mikið í sæluríkjunum í Austur-Evrópu á árunum á sjötta og sjöunda áratugnum.
Sjálfur skrifar hann reyndar aðallega greinar í Klassekampen, blað norskra marx-lenínista, meðan Hjörleifur og Ragnar skrifa í Moggann.