Mamma rifjaði það upp þegar hún var ung stúlka og fór í rútu í sveit í Eyjafirði.
Ferðin frá Reykjavík tók fimmtán tíma og vegirnir voru vondir.
Það var mikið um bílveiki.
En það stytti fólki stundirnar að syngja í rútunni.
Hugsið ykkur – bláókunnugt fólk að syngja saman í langferðabíl!
Ætli væri hægt að bjóða upp á svona í fluginu?