Stefán Snævarr, heimspekingur og háskólaprófessor í Noregi, verður meðal gesta í Silfri Egils næsta sunnudag.
Stefán var á fundinum með Joseph Stiglitz í Háskólanum í dag og setti fram athyglisverða kenningu eftir hann.
Stefán sat nefnilega frægan fund 1984. Það var þegar Milton Friedman kom til Íslands og haldinn var frægur hádegisverður og þótti dýrt inn.
Hann heldur því fram að fundurinn með Stiglitz hafi svipaða þýðingu og þegar Friedman kom; að þarna séu vatnaskil í efnahagslegri umræðu á Íslandi.
Meira um það í Silfrinu næst.