„Hann er í mikilli afneitun og hann hefur tapað miklu af peningum. Ég held að öll þjóðin sé í mikilli geðshræringu yfir afdrifum Jóns Ásgeirs, “ segir Atli Fannar Bjarkason blaðamaður í samtali við DV í dag.
Atli Fannar hefur efnt til fjársöfnunar fyrir Jón Ásgeir á Facebook síðu sinni. Hann segist hafa stofnað söfnunarreikning fyrir hann, enda hafi hann miklar áhyggjur af Joni.
Jón sagði sjálfur í viðtali við Viðskiptablaðið í gær að fólk þyrfti ekki að hafa áhyggjur af honum, hann væri ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldum sinum, en hann hefði tapað miklu fé.
Atli Fannar segist stefna að því að safna 312 milljörðum króna fyrir Jón Ásgeir, eða sem nemur gjaldþroti Baugs. Enn hefur þó ekki ein einasta króna safnast.