Hughes Beaudouin, fréttamaðurinn frá TF1, sem Jóhanna Sigurðardóttir vill ekki ræða við fremur en aðra erlenda fréttamenn er gamall Íslandsvinur.
Hughes er margsinnis búinn að reyna að ná tali af Jóhönnu, hann er tíður gestur á Íslandi.
Hughes var skiptinemi austur á fjörðum þegar hann var ungur maður.
Starfaði síðan í sendiráðinu franska í Reykjavík og eignaðist marga vini hér.
Hann skilur íslensku og talar hana þokkalega.
Hann er mjög vinveittur Íslandi.
Hann er mjög vel að sér um íslensk málefni.
Hann starfar við stærstu sjónvarpsstöð í Frakklandi.
Það er fáránlegt að forsætisráðherra Íslands neiti viðtali við svona mann.